Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Auður efst hjá smásölurisunum

Read Full Article →

Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga og Samkaupa, er tekjuhæstur forstjóra stóru matvörukeðjanna á Íslandi. Hún var með 11,6 milljónir króna í tekjur á mánuði samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem miðar við greitt útsvar. Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi sem rekur Krónuna, var með 7,2 milljónir á mánuði í fyrra. Til samanburðar var hún með 6,1 milljón á mánuði árið áður. Finnur Oddsson, forstjóri Haga sem rekur Bónus og Hagkaup, var með rúmlega 6,6 milljónir króna á mánuði í fyrra. Árið áður var hann með 6,4 milljónir. Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér og fá það heimsent. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins. Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.

Share this article