OMXI15 úrvalsvísitalan lækkaði um 0,11% í viðskiptum dagsins á aðalmarkaði kauphallarinnar. Tíu félög lækkuðu, fjögur hækkuðu og þrettán stóðu í stað. Gengi Alvotech hækkaði um 6,5% í dag og stendur gengi félagsins í 528 krónum á hlut. Gengið lækkaði skarplega í fyrstu viðskiptum dagsins áður en það tók við sér. Gengi félagsins hefur ekki verið hærra í rúma tvo mánuði. Alvotech birti uppgjör fyrir annan ársfjórðung eftir lokun markaða vestanhafs í gær. Í uppgjörinu kom fram að vörusala hefði dregist saman um nær helming og framlegð var lág á fjórðungnum. Félagið gerir þó ráð fyrir snörpum viðsnúningi á síðari helmingi ársins eftir að framleiðsla komst aftur í eðlilegt horf og FDA-úttekt lauk án formlegra aðgerða. Sjá einnig Vörusala helmingast en Alvotech boðar snarpan viðsnúning Mest lækkaði gengi Símans, um 4,4%, sem einnig birti uppgjör eftir lokun markaða í gær. Sjá einnig Hagnaður Símans helmingast en afkomuspá hækkuð Þá lækkaði JBT Marel um 1,4%, Arion banki um 1,3% og Íslandsbanki um 1,1%. Heildarvelta viðskipta dagsins nam 1,6 milljörðum króna. Mesta veltan var með bréf Reita, 296 milljónir króna, Haga, 287 milljónir króna, og Arion banka, 233 milljónir króna.