Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Rignir á maraþonhlaupara og gesti Menningarnætur

Read Full Article →

Búist er við að um hundrað þúsund gestir sæki dagskrá Menningarnætur í miðborg Reykjavíkur í dag. Fyrstu hlauparar í maraþoni og hálfmaraþoni í Reykjavíkurmaraþoninu leggja af stað rúmlega 8 og reiknað er með að allir hlauparar verði komnir í mark klukkan 15:30. Það mun rigna bæði á hlaupara og gesti Menningarnætur en Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan kalda eða stinningskalda með rigningu í dag. Það dregur hins vegar úr vætu í kvöld. Skýjað og úrkomuminna á Austurlandi Veðurstofan gerir ráð fyrir rigningu eða súld á sunnan- og vestanverðu landinu í dag en úrkomuminna verður austanlands. Hiti verður 10 til 19 stig, hlýjast á Austurlandi og Austfjörðum. Á morgun er búist við suðlægri eða breytilegri átt og skýjuðu veðri,með skúrum á víð og dreif. Næstu daga er spáð breytilegum vindáttum, með kólnandi veðri um miðja næstu viku.

Share this article