Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hafnfirðingar unnu Kýpverja og eru í góðri stöðu

Read Full Article →

FH-ingar fóru í heimsókn til Apollon á Kýpur en um var að ræða fyrsta Evrópuleik kvennaliðs FH. Þetta var fyrri viðureign liðanna í forkeppni Evrópubikars kvenna. Helena Maree Errington skoraði fyrsta mark FH í leiknum eftir góðan undirbúning frá Ingibjörgu Magnúsdóttur. Það var svo ekki löngu seinna að Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir skoraði annað mark beint úr aukaspyrnu og FH-ingar leiddu í hálfleik 2-0. Ekki bættu liðin mörkum við í seinni hálfleik og Hafnfirðingar fara því með tveggja marka forystu inn í seinni leikinn sem spilaður verður í Kaplakrika eftir viku.

Share this article