Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

UEFA höfðar mál gegn Infantino og FIFA

Read Full Article →

UEFA ætlar að höfða mál gegn FIFA, Gianni Infantino forseta FIFA, JP Morgan Bank og Joshua Kushner sem átti að leiða fjárfestingahóp til að kaupa hlut í mótahaldi FIFA. BBC hefur séð hluta af kæru UEFA . Þar segir að Infantino hafi þann 28. júlí kynnt áætlun um að setja viðskiptarétt HM karla og kvenna sem og heimsmeistaramót félagsliða undir nýjan hatt, FIFA Forward Eneterpsie, án þess að ráðfæra sig við FIFA-ráðið, UEFA eða neitt af hinum álfusamböndunum. Þessi áætlun hafi verið hugarfóstur Infantino og nokkurra fárra samsærismanna hans sem hafi þróast í leyni í meira en ár. Sky Sports segir einnig frá . Þar kemur fram að UEFA ætli að höfða sakamál gegn Infantino í Sviss, þar sem höfuðstöðvar FIFA eru, og mögulega fleiri stjórnarmönnum og ráðgjöfum FIFA. Einnig sé kærumál gegn JP Morgan bankanum og Thrive Capital, undir stjórn Joshua Kushner, á borði saksóknarans í New York.

Share this article