200 mílur | Morgunblaðið | 29.8.2026 | 15:42 Bræla hefur hamlað hvalveiðum Hvalur 9 er hér á leiðinni í land með eina langreyði á síðunni, en bræla og þoka hafa sett strik í reikninginn hvað veiðarnar varðar í sumar. Morgunblaðið/Þorgeir Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Gæftir til hvalveiða hafa verið fremur óhagstæðar það sem af er vertíðinni, en nú hefur veiðst alls 61 langreyður. Báðir hvalbátarnir, Hvalur 8 og Hvalur 9, eru á miðunum og er veðurútlitið gott næstu dagana. Þetta segir Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. í samtali við Morgunblaðið. Hann segir brælutíð undanfarið hafa hamlað veiðum og einnig hafi þoka á hvalaslóðinni sett strik í reikninginn. „Það hefur ekki verið gott veður til hvalveiða í sumar,“ segir Kristján, en nefnir að stefnt sé á að stunda veiðarnar í 100 daga í sumar, líkt og lengst af hafi verið venjan. „Við höldum áfram veiðum til 25. september og jafnvel eitthvað lengur ef hvalur er á svæðinu,“ segir hann og nefnir að þess séu dæmi að veitt hafi verið fram í október þegar gefið hefur. Kristján segir aðspurður engar líkur á því að núverandi ríkisstjórn muni sækjast eftir undanþágu frá hvalveiðibanni Evrópusambandsins ef þannig færi að samþykkt yrði í þjóðaratkvæðagreiðslu að hefja á ný aðildarviðræður að sambandinu. Hvalveiðum yrði sjálfhætt „Þessi ríkisstjórn myndi ekki berjast fyrir því, það er ég sannfærður um,“ segir Kristján og hvalveiðum yrði því sjálfhætt hér við land með tilheyrandi tjóni fyrir fyrirtækið og starfsfólk þess. „Þetta Evrópusamband er einhvers konar mjúk útgáfa af Sovétinu og ekkert nema reglugerðir um hvað eina. ESB hefur verið á móti hvalveiðum frá árinu 1973 og ég sé enga möguleika á að það fari að skipta um skoðun,“ segir hann. „Ef fólk virkilega heldur að hægt sé að fá einhverjar varanlegar undanþágur frá regluverki ESB, þá er það eins fráleitt og mest má vera. Hverjum dettur í hug að taka inn einhvern nýjan meðlim í klúbbinn sem á að lúta í mörgum málum reglum sem eru þvert á alla aðra? Það er útilokað. Þetta er eins og ef einhver ætlar að ganga í stúku, þá er ætlast til þess að hann drekki ekki brennivín. Hann fær ekki undanþágu til þess að detta í það einu sinni í viku. Það yrði aldrei leyft,“ segir Kristján. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Meiri makríll eftir sögulegt lágmark Alls hefur 61 langreyður veiðst það sem af er sumri Brynjar nýr formaður stjórnar Varnarsigur í úthlutun þorskkvóta Vilja Strandvara til Noregs Elta íslenska loðnu til Grænlands Fimm fyrirtæki með þriðjung kvótans Segja hvalveiðar orðnar tilgangslausar Segja sjávarútveginn hafna aðild að ESB Fjölnir GK í hörkufiskiríi Brynjar nýr formaður stjórnar Varnarsigur í úthlutun þorskkvóta Vilja Strandvara til Noregs Fimm fyrirtæki með þriðjung kvótans Segja sjávarútveginn hafna aðild að ESB Elta íslenska loðnu til Grænlands Landað úr skraptúr í Grindavík Voru norðan við Kolbeinsey Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Fyrirhöfn að ná í makrílinn Brynjar nýr formaður stjórnar ESB fallist ekki á rauðu strikin Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Fimm fyrirtæki með þriðjung kvótans Jón Þór ráðinn til Samherja Ekki raunhæft að fá varanlegar undanþágur Vilja Strandvara til Noregs Undirbúa grænlenskan sjávarklasa Landaði 67 tonnum á Grundarfirði Fjölnir GK í hörkufiskiríi Fleira áhugavert Útlit fyrir góða kjörsókn Ákvörðunin þröng og ólýðræðisleg „Sendir okkur bara enn þá frekari hvatningu“ Þykir vænt um að sjá að fólkið vilji kjósa Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 28.8.26 665,40 kr/kg Þorskur, slægður 28.8.26 808,00 kr/kg Ýsa, óslægð 28.8.26 506,06 kr/kg Ýsa, slægð 28.8.26 510,53 kr/kg Ufsi, óslægður 28.8.26 333,75 kr/kg Ufsi, slægður 28.8.26 405,84 kr/kg Djúpkarfi 5.8.26 331,00 kr/kg Gullkarfi 28.8.26 183,81 kr/kg Litli karfi 25.8.26 20,00 kr/kg Blálanga, óslægð 28.8.26 229,97 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 29.8.26 Dílaskarfur ÍS 418 Sjóstöng Þorskur 157 kg Samtals 157 kg 29.8.26 Þórshani ÍS 442 Sjóstöng Þorskur 57 kg Samtals 57 kg 29.8.26 Hávella ÍS 426 Sjóstöng Þorskur 219 kg Samtals 219 kg 29.8.26 Svanur ÍS 443 Sjóstöng Þorskur 210 kg Samtals 210 kg 29.8.26 Álft ÍS 413 Sjóstöng Ýsa 260 kg Samtals 260 kg 29.8.26 Agla ÍS 179 Handfæri Þorskur 119 kg Langa 85 kg Samtals 204 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Meiri makríll eftir sögulegt lágmark Alls hefur 61 langreyður veiðst það sem af er sumri Brynjar nýr formaður stjórnar Varnarsigur í úthlutun þorskkvóta Vilja Strandvara til Noregs Elta íslenska loðnu til Grænlands Fimm fyrirtæki með þriðjung kvótans Segja hvalveiðar orðnar tilgangslausar Segja sjávarútveginn hafna aðild að ESB Fjölnir GK í hörkufiskiríi Brynjar nýr formaður stjórnar Varnarsigur í úthlutun þorskkvóta Vilja Strandvara til Noregs Fimm fyrirtæki með þriðjung kvótans Segja sjávarútveginn hafna aðild að ESB Elta íslenska loðnu til Grænlands Landað úr skraptúr í Grindavík Voru norðan við Kolbeinsey Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Fyrirhöfn að ná í makrílinn Brynjar nýr formaður stjórnar ESB fallist ekki á rauðu strikin Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Fimm fyrirtæki með þriðjung kvótans Jón Þór ráðinn til Samherja Ekki raunhæft að fá varanlegar undanþágur Vilja Strandvara til Noregs Undirbúa grænlenskan sjávarklasa Landaði 67 tonnum á Grundarfirði Fjölnir GK í hörkufiskiríi Fleira áhugavert Kristrún segist bjartsýn: „Ég hef trú á þjóðinni“ Brotist inn í Hygge: „Þetta er alveg týpískt“ Útlit fyrir góða kjörsókn Rafleiðni hefur aukist: Varað við gasmengun Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 28.8.26 665,40 kr/kg Þorskur, slægður 28.8.26 808,00 kr/kg Ýsa, óslægð 28.8.26 506,06 kr/kg Ýsa, slægð 28.8.26 510,53 kr/kg Ufsi, óslægður 28.8.26 333,75 kr/kg Ufsi, slægður 28.8.26 405,84 kr/kg Djúpkarfi 5.8.26 331,00 kr/kg Gullkarfi 28.8.26 183,81 kr/kg Litli karfi 25.8.26 20,00 kr/kg Blálanga, óslægð 28.8.26 229,97 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 29.8.26 Dílaskarfur ÍS 418 Sjóstöng Þorskur 157 kg Samtals 157 kg 29.8.26 Þórshani ÍS 442 Sjóstöng Þorskur 57 kg Samtals 57 kg 29.8.26 Hávella ÍS 426 Sjóstöng Þorskur 219 kg Samtals 219 kg 29.8.26 Svanur ÍS 443 Sjóstöng Þorskur 210 kg Samtals 210 kg 29.8.26 Álft ÍS 413 Sjóstöng Ýsa 260 kg Samtals 260 kg 29.8.26 Agla ÍS 179 Handfæri Þorskur 119 kg Langa 85 kg Samtals 204 kg Skoða allar landanir »