Japanska jenið og ríkisskuldabréf landsins lentu undir þrýsting í eftir að fjárfestar juku veðmál sín um frekari vaxtahækkanir bæði í Bandaríkjunum og Japan. Jen veiktist um tíma niður fyrir 160 gagnvart Bandaríkjadal, en ávöxtunarkrafa bæði skammtíma- og tíu ára japanskra ríkisskuldabréfa fór í hæstu hæðir í meira en þrjá áratugi, að því er Financial Times greinir frá. Hreyfingarnar komu í kjölfar ræðu Kevin Warsh, seðlabankastjóra Bandaríkjanna, á árlegri ráðstefnu seðlabankamanna í Jackson Hole. Warsh sló þar fremur haukalegan tón og sagði nýjustu verðbólgutölur áhyggjuefni. Megináhersla Seðlabankans ætti nú að vera á verðstöðugleika, að hans sögn, sem jók væntingar um mögulega vaxtahækkun strax á næsta vaxtaákvörðunarfundi. Masahiko Loo, sérfræðingur hjá State Street í Tókýó, segir við FT að bæði endurverðlagning bandarískra vaxta eftir Jackson Hole og aukin trú á að Japansbanki geti hækkað vexti strax í september hafi knúið söluþrýstinginn á japönsk skuldabréf. Ávöxtunarkrafa tveggja ára japanskra ríkisskuldabréfa hækkaði í allt að 1,72% og hefur ekki verið hærri frá maí 1995. Ávöxtunarkrafa tíu ára bréfa fór um tíma í 2,95%, sem er hæsta stig frá 1996. Markaðurinn metur nú líkurnar á vaxtahækkun Japansbanka í næsta mánuði yfir 90%. Viðvarandi verðbólga og þrýstingur á seðlabankann um að styðja við jenið hafa að mati markaðsaðila flýtt fyrir vaxtahækkunarferlinu. Jen hefur verið undir mikilli smásjá frá því japönsk stjórnvöld vörðu metfjárhæð, 96,5 milljörðum dala, í júlí og ágúst til að styðja við gjaldmiðilinn í samvinnu við bandarísk stjórnvöld. Jen hefur síðan tapað meira en helmingi þeirrar styrkingar sem fylgdi inngripunum. Þrátt fyrir að hærri japanskir vextir ættu að öðru óbreyttu að styðja við jenið hefur það ekki enn gerst með afgerandi hætti. Abbas Keshvani, sérfræðingur hjá RBC Capital Markets, segir við FT að hærri ávöxtunarkrafa sé vissulega aðlaðandi fyrir fjárfesta en svo lengi sem hún haldi áfram að hækka sé erfitt að byggja upp trú á japönskum skuldabréfum. Markaðurinn þurfi fyrst og fremst stöðugleika. Ummæli bandaríska fjármálaráðherrans Scott Bessent um helgina styrktu jafnframt væntingar um að Bandaríkin vilji frekar sjá Japansbanka hækka vexti en að japönsk stjórnvöld grípi aftur til beinna gjaldeyrisinngripa. Á sama tíma varð lítil hreyfing á bandarískum ríkisskuldabréfum. Ávöxtunarkrafa tíu ára bandarískra ríkisskuldabréfa lækkaði lítillega í 4,71%.