Búist er við múgi og margmenni á toppslag Bestu deildar karla í kvöld. Topplið Víkinga sækja KR-inga heim í Vesturbæinn. Víkingar eru með átta stiga forskot eins og er. Leikurinn verður pallaleikur þar sem búið er að koma upp auka aðstöðu fyrir áhorfendur. Pálmi Rafn Pálmason, framkvæmdastjóri KR, vill ekki rýna um of í áhorfendatölur en telur að tæplega 3.000 manns gætu lagt leið sína í Vesturbæinn í kvöld. Þá telur hann að svæðið í heild sinni gæti tekið við mun fleirum. Hann ræddi umgjörðina um leik kvöldsins, hversu mörgum áhorfendum KR-svæðið getur tekið á móti og hvar Víkingar verða. Pálmi byrjaði daginn á því að þrífa upp skemmdarverk stuðningsmanna Víkinga á KR svæðinu. „Ég öfunda mína menn alveg sérstaklega að fara að leika þennan leik í dag. Umgjörðin og veðrið, allavega núna þessa stundina, gæti ekki verið betra.“ Hvar verða Víkingar? Stuðningsmenn KR voru ósáttir við að fá einungis takmarkað pláss á pöllum í fyrri leik liðanna í Fossvogi í sumar. Víkingar fá hefðbundið pláss í stúkunni á Meistaravöllum en sökum fjölda fara þeir inn um gestahliðið austast á KR-svæðinu, við Flyðrugranda. „Stuðningsmenn Víkings verða á þeim stað sem stuðningsmenn útiliða eru yfirleitt hjá okkur. Þeir munu ganga inn um hliðið þeim megin, Flyðrugrandamegin. Þar verður opið fyrir Víkinga að fara inn á svæðið. Svo verður restin svört og hvít.“ Geta auðveldlega tekið á móti 3.000 Búið er að setja upp aukapalla við vallarklukku KR-vallarins, næst félagsheimilinu. „Við náttúrulega reiknum með að við séum að fá tæplega 3.000 manns allavega inn á völlinn. Við teljum okkur geta tekið auðveldlega á móti því. Við erum búnir að setja upp palla við vallarklukkuna til að auka aðeins svæðið fyrir okkar fólk. Þannig að sem flestir geti komið og séð leikinn.“ Er hægt að selja upp á KR-völlinn? Mest hafa 5.400 mætt á KR-völlinn, þegar KR og ÍBV mættust í pallaleik árið 1998. Pálmi segir að tæknilega séð geti svæðið tekið við fleirum en um 3.000 manns, en að leyfisfjöldi sé ákveðin takmörkun. „Við erum náttúrulega með leyfi fyrir ákveðnum fjölda en ég er nokkuð viss um að við gætum komið fyrir fleiri, fleiri þúsund manns hérna án nokkurs vanda. Þetta er náttúrulega mjög opið svæði. Það er ekkert mál að koma fólki fyrir hérna. En til að allt sé eins og það á að vera og að allir geti séð þokkalega held ég að við náum leikandi tæplega 3.000 manns hérna á völlinn.“ Fleiri hamborgarar pantaðir KR-ingar hafa gert ráðstafanir í mat og drykk vegna fjöldans. „Það eru auðvitað pantaðir fleiri hamborgarar í dag heldur en flesta aðra leiki. Við erum búin að panta inn meiri mat en áður. Við vonumst til þess að sem flestir komi beint úr vinnu og fái sér að borða og njóti góðs leiks.“ Hvað finnst KR-ingum um 17:30? Leikurinn var færður frá sunnudegi til þriðjudags klukkan 17:30. Upprunalegi leiktíminn var 17:00 en leiknum var seinkað um hálftíma til að gefa fólki færi á að koma sér á völlinn úr vinnu. Pálmi segir tilfærsluna upphaflega hafa verið svekkjandi en að lokaniðurstaðan gæti hins vegar verið fullkomin. „Það er auðvitað svolítið svekkjandi að hann hafi verið færður af sunnudegi yfir á þriðjudag, klukkan 17:30. Það er ekkert leyndamál. En ég meina, er þetta ekki fullkomið? Að koma úr vinnunni, fara í mat og sjá þennan leik. Ég sé ekki einhvern veginn hvernig dagurinn gæti verið betri hjá fólki.“ Verða fleiri en á þeim mest sótta fyrir ári? 26. júlí 2025 sneri KR aftur á Meistaravelli eftir fjarveru vegna lagningu nýs gervigrass. Þá mættu 3.107 manns og sáu Breiðablik og KR gera 1-1 jafntefli. Það var best sótti leikur tímabilsins 2025. Best sótti leikurinn á tímabilinu hingað til er KR - Valur 26. maí er KR vann 3-1 sigur. Þar á eftir er upphafsleikur Bestu deildarinnar, þegar Víkingur og Breiðablik mættust í uppseldum leik í Fossvogi. Þá mættu 2.200 manns.