Leikur KR gegn Víkingum í Bestu deild karla í fótbolta var einn besti sótti leikur síðari ára. 4.337 manns lögðu leið sína í Vesturbæinn í gær. Þetta er sá leikur sem lestir hafa mætt á frá því að 6.450 manns mættu í Kaplakrika til að sjá hreinan úrslitaleik FH og Stjörnunnar árið 2014. Síðan þá voru liðnir 4.350, eða 11 ár, 10 mánuðir og 28 dagar. Þetta er í fyrsta sinn síðan þá sem að 4.000 manna múrinn er rofinn. Auk þess mættu fleiri á leikinn en síðustu þrjá bikarúrslitaleiki. Víkingar voru með átta stiga forskot fyrir leikinn og liðin gerðu 1-1 jafntefli. Forskotið er því enn átta stig þegar sex leikir eru til stefnu. Leikurinn var klukkan 17:30 á þriðjudegi en átti upprunalega að vera á sunnudegi. „Við erum náttúrulega með leyfi fyrir ákveðnum fjölda en ég er nokkuð viss um að við gætum komið fyrir fleiri, fleiri þúsund manns hérna án nokkurs vanda. Þetta er náttúrulega mjög opið svæði. Það er ekkert mál að koma fólki fyrir hérna. En til að allt sé eins og það á að vera og að allir geti séð þokkalega held ég að við náum leikandi tæplega 3.000 manns hérna á völlinn,“ sagði Pálmi Rafn Pálmason framkvæmdastjóri KR fyrir leik í gær. Breiðablik og KR eru þau lið sem koma oftast fyrir á listanum frá 2014, sex sinnum hvor. Heimaleikir FH voru þeir aðsóknarmestu í fjögur ár í röð en síðan þá hafa Hafnfirðingar ekki átt aðsóknarmesta leikinn. Best sótti leikurinn á tímabilinu hingað til var KR - Valur 26. maí er KR vann 3-1 sigur. Þá mættu 2.517 manns. Þar á eftir er upphafsleikur Bestu deildarinnar, þegar Víkingur og Breiðablik mættust í uppseldum leik í Fossvogi. Þá mættu 2.200 manns. Harpan? Háskólabíó? Eldborg í Hörpu rúmar 1.734 manns þegar salurinn er fullnýttur. Áhorfendafjöldi gærdagsins hefði fyllt Eldborg 2,5 sinnum. Stóri salurinn í Háskólabíói rúmar 970 manns. Áhorfendafjöldinn á KR-vellinum hefði þurft 4,47 stóra sali í Háskólabíói. Betri mæting en á síðustu þrjá bikarúrslitaleiki Þá var leikur gærkvöldsins einnig með fleiri áhorfendur en síðustu þrír bikarúrslitaleikir. Að vísu hafa þeir allir verið leiknir af einu landsbyggðarliði. Ef miðað er við sama tímabil, frá 2014, hafa aðeins fjórir af ellefu leikjum verið fjölmennari en leikur gærkvöldsins. Aðsóknarmestu leikir sögunnar - fimm efstu: 2014 - FH 1-4 Stjarnan - 6.450 áhorfendur (Kaplakriki) 1961 - KR 4-0 ÍA - 6.171 áhorfandi (Laugardalsvöllur) 1996 - ÍA 4-1 KR - 5.801 áhorfandi (Akranesvöllur) 1998 - KR 2-0 ÍBV - 5.400 áhorfendur (KR-völlur) 1999 - KR 3-0 ÍBV - 5.120 áhorfendur (KR-völlur) Málið flækist - hvað með stöku úrslitaleikina? Blaðamaðurinn Sigmundur Ó. Steinarsson er fróðari en flestir þegar kemur að íþróttasögunni. Í úttekt fotbolti.net árið 2013 f ór hann yfir best sóttu leiki í sögu efstu deildar. Á árum árum þekktist það vel að leiknir voru stakir úrslitaleikir um Íslandsmeistaratitilinn, utan hefðbundinnar deildarkeppni. Þá var markatala ekki notuð til að skera úr um Íslandmeistaratitilinn. Þeir leikir voru afar vel sóttir og þetta eru þeir fjölmennustu. Við stillum þeim hins vegar ekki upp gegn leikjum í hefðbundinni deildarkeppni. Fjölmennustu úrslitaleikir um Íslandsmeistaratitil: 1971 - Keflavík 4-0 ÍBV - 8.790 áhorfendur (Laugardalsvöllur) 1965 - KR 2-1 ÍA 8.534 áhorfendur (Laugardalsvöllur) 1966 - Valur 2-1 Keflavík 6.803 áhorfendur (Laugardalsvöllur) 1966 - Valur 2-2 Keflavík 6.097 áhorfendur (Laugardalsvöllur)