Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þriðja aftakan í Flórída það sem af er ári

  • What: Third execution in Florida this year
  • Impact: Related to criminal justice system
Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 29 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Þriðja af­tak­an í Flór­ída það sem af er ári Markús Þ. Þórhallsson Varðturn við bandarískt fangelsi. Mynd úr safni. EPA Rúmlega fimmtugur bandarískur karlmaður var tekinn af lífi í Flórída í kvöld, en hann var dæmdur til dauða árið 1991 fyrir að hafa myrt lögreglumann með skammbyssu hans. Eitursprauta var notuð við líflátið, sem var það þriðja í Flórída á þessu ári. Fyrir 59 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Grænland Kan­a­da­menn fjár­festa í náma­vinnslu og orku Grænlendingar og Kanadamenn hafa undirritað samning um umfangsmikla fjárfestingu í námuvinnslu og orkumálum. Heimastjórnin og ráðherra málaflokksins vonast til að efnahagslífið taki verulega við sér. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Íran Sonur fall­ins æðsta­klerks sagður taka við af föður sínum Nýr æðstiklerkur Írans hefur verið valinn. Hann er sonur æðstaklerksins sem drepinn var í loftárás síðasta laugardag og hefur ekki gegnt opinberu embætti áður. Sterk tengsl hans við byltingarvörðinn hafa tryggt honum mikil ítök. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Við­skipta­ráð­herr­ann svarar spurn­ing­um nefnd­ar um tengsl við Ep­stein Markús Þ. Þórhallsson Bandaríski viðskiptaráðherrann Howard Lutnick hefur fallist á að svara spurningum eftirlits- og stjórnskipunarnefndar Bandaríkjaþings, sem rannsakar glæpi kynferðisbrotamannsins Jeffreys Epstein. Howard Lutnick er viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Donalds Trump. EPA / WILL OLIVER / POOL Lutnick heimsótti eyju Epsteins í Karíbahafi nokkrum sinnum, nokkrum árum eftir að ráðherrann kveðst hafa slitið á öll tengsl við hann, samkvæmt vísbendingum í þeim milljónum skjala sem dómsmálaráðuneytið birti í janúar. Nefndarformaðurinn James Comer greindi frá þessu í færslu á X þar sem hann fagnar ákvörðun ráðherrans. Ekki kemur fram hvenær Lutnick flytur vitnisburð sinn. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Hvað er málið með grá­sleppu? Atvinnuvegaráðherra segir að kvótasetning á grásleppu hafi verið afturkölluð svo fleiri hafi leyfi til að veiða. Kvótasetningin hafi verið umdeild, ekki sé byrjað að framselja réttindin og Hafrannsóknastofnun hafi ekki áhyggjur af ofveiði. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Risa­fjár­fest­ing­ar í píp­un­um hjá Lands­virkj­un Landsvirkjun hyggst á næstu árum ráðast í einhverjar umfangsmestu fjárfestingar sem fyrirtækið hefur ráðist í. Fjárfest verður fyrir 190 milljarða á næstu fimm árum. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hafnarfjörður Fram­boðs­listi Við­reisn­ar í Hafn­ar­firði birtur Ásrún Aldís Hreinsdóttir Framboðslisti Viðreisnar í Hafnarfirði var gerður opinber á fjölmennum félagsfundi flokksins í kvöld. Karólína Helga Símonardóttir, framkvæmdarstjóri og varaþingmaður, leiðir listann sem Viðreisn segir einkennast af blöndu af fyrri reynslu og nýjum röddum. Hér má sjá hverjir skipa tíu efstu sæti listans: Karólína Helga Símonardóttir Árni Stefán Guðjónsson Hjördís Hlíðberg Óli Örn Eiríksson Sigrún Jónsdóttir Júlíus Andri Þórðarson Amanda K. Ólafsdóttir Sigurjón Ingvason Ágústa Sigurjónsdóttir Bragi Hinrik Magnússon Listinn var tilkynntur á fjölmennum fundi í Hafnarfirði í kvöld. Aðsend Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum Aukinn flutn­ings­kostn­að­ur vegna átaka komi sér sér­stak­lega illa fyrir Ísland Hagfræðingur segir átökin í Miðausturlöndum þegar hafa haft mikil áhrif á olíu- og flutningsverð. Ekki sé þó ekki ljóst hver langtímáhrifin verði, allt fari það eftir hve lengi átökin standa yfir. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Mygla á end­ur­hæf­ing­ar- og öldr­un­ar­lækn­inga­deild SAk Mygla hefur fundist í húsnæði Sjúkrahússins á Akureyri á Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit. Á Kristnesi starfar endurhæfingar og öldrunarlækningardeild sjúkrahússins, ekki er gert ráð fyrir því að skerða þurfi þjónustu vegna myglunnar. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál „Heim­ur­inn vill ekki hafa mig en ég ætla að vera í honum“ Einhverfum er gjarnan synjað um geðheilbrigðisþjónustu hérlendis. Ungur einhverfur maður sem hefur ítrekað lent á veggjum í kerfinu þrátt fyrir sjálfsvígshugsanir ákvað þegar hann fékk innlögn á geðdeild síðastliðið sumar að hann skyldi velja lífið. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ing­in tapa fylgi Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin tapa fylgi í borginni samkvæmt nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið. Báðir flokkarnir mælast áfram stærstir. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vinnumarkaður Farið í eft­ir­lit á 350 vinnu­staði á einu ári Á vegum formlegs samstarfseftirlits lögreglu, Skattsins og Vinnueftirlitsins sem hófst fyrir ári hefur verið farið á 350 vinnustaði til að athuga hugsanlega brotastarfsemi. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Breyt­ing­ar á stjórn Há­skól­ans á Bif­röst Dr. Vilhjálmur Egilsson er nýr ráðgjafi stjórnar og rektors háskólans á Bifröst. Vilhjálmur gegndi sjálfur starfi rektors skólans á tímabilinu 2013 til 2020. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál „Þetta er skamm­ar­blett­ur á kerf­inu okkar“ Það þarf að efla geðheilbrigðisþjónustu og úrræði fyrir einhverfa á Íslandi, segir geðlæknir. Ákveðinn hópur einhverfra falli milli skips og bryggju í kerfinu. 3. mars 2026 kl. 18:02ERLENDAR FRÉTTIR Varnarmál Norð­menn ræða þátt­töku í fæl­ing­ar­áætl­un Frakka Norsk stjórnvöld segjast tilbúin að ræða samstarf við Frakka um áætlun þeirra um fælingu með kjarnavopnum. Danir og Svíar ætla að taka þátt, en íslenskum stjórnvöldum var ekki boðið, segir utanríkisráðherra. 3. mars 2026 kl. 18:00INNLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum Poll­ró­leg­ur Björn á sjúkra­hús­inu í Ríad þrátt fyrir dróna­árás á banda­rískt sendi­ráð Björn Zoëga, forstjóri King Faisal-sjúkrahússins í Ríad, er pollrólegur þrátt fyrir að ófriðarbálið sem er að kvikna í Miðausturlöndum. Drónaárás Írans á sendiráð Bandaríkjanna í borginni hafi þó vakið fólk til umhugsunar. 3. mars 2026 kl. 18:00MENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Border collie-tík Dr. Gunna lenti í ást­ar­æv­in­týri um jólin Tíkin Skrítla lokkaði til sín fjósahundana Sexý Rú og Spora á aðfangadag, fjölskyldunni til mikillar mæðu, og bar ævintýrið nýlega ávöxt. „Ef það eru einhverjir tilkippilegir rakkar innan þessa radíuss þá er bara voðinn vís,“ segir Dr. Gunni. 3. mars 2026 kl. 17:51INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Einar Geir leiðir Mið­flokk­inn í Hafn­ar­firði Mist Þormóðsdóttir Grönvold Lögfræðingurinn Einar Geir Þorsteinsson leiðir lista Miðflokksins í Hafnarfirði í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þetta kemur fram í tilkynningu Miðflokksdeildar Hafnarfjarðar. Þar segir að niðurstaða uppstillingarnefndar liggi fyrir og muni efstu sæti listans verða kynnt á næstu dögum. Í tilkynningunni segist Einar vilja leggja áherslu á grunnþjónustu, fjölskyldur, atvinnulíf og samgöngur í Hafnarfjarðabæ. Hann talar einnig fyrir því að endurmeta stefnu sem skapað hafi álag á innviði bæjarins og nefnir í því samhengi að þora verði að ræða áhrif umfangsmikillar móttöku hælisleitenda á húsnæðismarkað, skóla og félagsþjónustu í bæjarfélaginu. Miðflokksdeild Hafnarfjarðar 3. mars 2026 kl. 17:30INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál For­mað­ur Við­reisn­ar í Reykja­vík kærður fyrir fjár­drátt Formanni Viðreisnar í Reykjavík hefur verið vikið frá störfum. Hann hefur verið sakaður um fjárdrátt og að millifæra fjórar til fimm milljónir króna úr sjóðum félagsins. Málið hefur verið kært til lögreglu. 3. mars 2026 kl. 17:19INNLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum Ís­lend­ing­ar í Mið­aust­ur­lönd­um upp­lýst­ir um mögu­leg björg­un­ar­flug Utanríkisráðuneytið upplýsti Íslendinga í Miðausturlöndum um þrjú möguleg björgunarflug samstarfsríkja sem gætu orðið á fimmtudag og föstudag. Takmarkaður sætafjöldi er í boði fyrir ríkisborgara Evrópuríkja. 3. mars 2026 kl. 16:58INNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Bygg­ing smá­hýsa í Garð­in­um felld úr gildi á form­inu Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála telur að bygging smáhýsa í Garðinum hafi ekki verið nægilega vel kynnt. Eigandi verkefnisins segir niðurstöðuna einungis vera formlegs eðlis og að samþykkja þurfi deiliskipulagið upp á nýtt. 3. mars 2026 kl. 16:37INNLENDAR FRÉTTIR Andlát Davíð Odds­son jarð­sung­inn 13. mars Davíð Oddsson fyrrverandi forsætisráðherra og borgarstjóri verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn 13. mars. 3. mars 2026 kl. 16:31INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Meiri­hluti fólks í við­halds­með­ferð við óp­í­ó­íða­fíkn ráði við komu­gjald Heilbrigðisráðherra segir í skoðun að gera viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn gjaldfrjálsa í upphafi meðferðar. Hún segist ekki geta svarað hvort til greina komi að þjónustan fari fram í apótekum undir eftirliti lyfjafræðings. 3. mars 2026 kl. 16:22INNLENDAR FRÉTTIR Landbúnaður Hægt að gjör­bylta sauð­fjár­stofn­in­um á átta árum Sauðfjárræktarráðunautur er ánægður með þátttöku í greiningum á verndandi arfgerðum gegn riðuveiki, sem Matís tók nýverið við af Íslenskri erfðagreiningu. Markmið um riðulaust Ísland árið 2044 sé raunhæft. 3. mars 2026 kl. 16:22MENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir „Ég hef skapað skrímsli“ Velkomin í Voðagerði, hér er allt að óttast ... stendur aftan á bókinni Voðagerði: Lilja sem er fyndin hryllingsbók fyrir krakka eftir Hilmar Örn Óskarsson og Blævi Guðmundsdóttur. 3. mars 2026 kl. 15:55INNLENDAR FRÉTTIR Eldgos við Sundhnúksgíga Kviku­söfn­un að nálg­ast hámark frá upp­hafi hrin­unn­ar Veðurstofan gerir ráð fyrir að kvikumagn undir Svartsengi verði það mesta sem safnast hefur milli eldgosa frá því að hrinan hófst í desember 2023. Kvika hefur safnast í um 210 daga og um 22,5 milljón rúmmetrar af kviku hafa safnast fyrir. 3. mars 2026 kl. 15:38INNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Lokuðu vegi vegna snjó­flóðs í Rakna­dals­hlíð Hugrún Hannesdóttir Diego Vegagerðin hefur lokað Barðastrandarvegi við Raknadalshlíð vegna snjóflóðs sem féll yfir hann í dag. Samkvæmt ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands var gert ráð fyrir að snjóflóðahætta myndi aukast þa

Share this article