Financial Times greinir frá því að Nicolai Tangemn sjóðstjóri norska olíusjóðsins hafi lagt til við norska fjármálaráðuneytið að vægi ríkisskuldabréfa í viðmiðunarvísitölu skuldabréfasafnsins verði lækkað úr 70% í 50%. Samkvæmt útreikningum FT gæti breytingin falið í sér um 106 milljarða dala samdrátt í ríkisskuldabréfaeign sjóðsins á heimsvísu, þar af um 80 milljarða dala í bandarískum ríkisskuldabréfum. Tillagan kemur á sama tíma og áhyggjur hafa aukist af skuldastöðu ríkissjóða víða um heim og mikill söluþrýstingur hefur verið á skuldabréfamörkuðum. Stríð Bandaríkjanna við Íran hefur jafnframt aukið verðbólguótta og ýtt ávöxtunarkröfu bandarískra ríkisskuldabréfa upp. Minna vægi ríkisskuldabréfa yrði samkvæmt tillögunni að mestu bætt upp með kaupum á áhættusamari skuldabréfum, meðal annars veðtryggðum skuldabréfum í Bandaríkjunum. Stór hluti þeirra er þó tryggður af ríkistengdum stofnunum á borð við Fannie Mae, Freddie Mac og Ginnie Mae og er lánshæfi þeirra því nálægt því sem gerist með bandarísk ríkisskuldabréf. NBIM segir að 50% vægi ríkisskuldabréfa nægi til að mæta lausafjárþörf sjóðsins, jafnvel á óróatímum, en að afgangurinn geti gefið sjóðnum aðgang að fleiri áhættuálögum og þannig aukið mögulega ávöxtun. Tillagan myndi samkvæmt FT lækka hlut bandarískra ríkisskuldabréfa í safninu um 12,2 prósentustig en á móti yrði vægi annarra bandarískra skuldabréfa aukið um 11,4 prósentustig. Heildaráhætta sjóðsins gagnvart Bandaríkjadal myndi því lítið breytast. Samkvæmt NBIM myndi dollaravægið aðeins lækka um 0,5 prósentustig. Þetta er eftirtektarvert í ljósi þess að Jens Stoltenberg fjármálaráðherra sagði í apríl að engin áform væru uppi um að draga úr áhættu sjóðsins gagnvart Bandaríkjunum, þrátt fyrir gagnrýni sumra norskra þingmanna á mikla eignasöfnun þar. Tillagan er enn aðeins ráðgjöf til fjármálaráðuneytisins og kemur til meðferðar í stærra ferli. Sérfræðiráð á að skila tillögum fyrir janúar og ráðuneytið mun síðan leggja lokatillögur fyrir norska þingið vorið 2027. Norski olíusjóðurinn er yfir 2.000 milljarðar dala að stærð og er einn stærsti fjárfestingarsjóður heims. Rúmlega fjórðungur eigna hans er nú í skuldabréfum. Sjá einnig Söluþrýstingur á skuldabréfamörkuðum magnast