Verðbólga hefði verið um 4,8% í júlí ef áhrif skatta og verðhækkana á opinberri þjónustu væru undanskilin. Það hefði haldið verðbólgunni undir því marki sem skiptir máli við endurskoðun kjarasamninga. Skattaáhrif og verðhækkanir á opinberri þjónustu bættu um hálfu prósentustigi við verðbólgu í júlí. Þetta kemur skýrt fram í fundargerð peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands sem birtist í vikunni. Verðbólga mældist 5,3% í júlí en án þessara áhrifa hefði hún verið um 4,8%. „Verðbólga mældist 5,3% í júlí og jókst um 0,1 prósentu milli mánaða. Án skattaáhrifa og verðhækkana á opinberri þjónustu var hún hins vegar um 0,5 prósentum minni,“ segir í fundargerðinni. Sjá einnig Tómas vildi halda vöxtum óbreyttum Munurinn skiptir máli vegna endurskoðunar kjarasamninga síðar á árinu. Miðað við þau verðbólguviðmið sem greiningardeildir viðskiptabankanna hafa horft til við mat á forsenduákvæðum samninganna hefði verðbólgan haldist undir viðkomandi marki ef ekki hefði komið til skattaáhrifa og verðhækkana á opinberri þjónustu. Samkvæmt Seðlabankanum voru það hins vegar opinberar ákvarðanir sem hækkuðu mælda verðbólgu úr um 4,8% í 5,3% í júlí. Peningastefnunefnd gengur raunar lengra í mati sínu á þróuninni og segir að hækkun opinberra gjalda hafi verið einn helsti þátturinn á bak við aukna mælda verðbólgu. „Aukning mældrar verðbólgu hafði fyrst og fremst litast af hækkun opinberra gjalda og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum,“ segir Seðlabankinn. [áhersla vb.is] Sjá einnig Aukin verðbólga „fyrst og fremst“ vegna hækkunar opinberra gjalda Þá kemur fram að opinberar verðhækkanir séu ekki að fullu komnar fram. Seðlabankinn gerir ráð fyrir að verð opinberrar þjónustu hækki áfram á næstu mánuðum, meðal annars vegna fyrirhugaðra hækkana á gjöldum fyrir heilbrigðisþjónustu og skráningargjöldum við Háskóla Íslands. Peningastefnunefnd hefur jafnframt sérstaklega rætt mögulega endurskoðun kjarasamninga síðar á árinu sem áhættuþátt fyrir verðbólgu, enda geti aukin verðbólga og háar verðbólguvæntingar aukið þrýsting á laun og verðlag Sjá einnig „Það eru engin fórnarlömb hér“