Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Eðlilegt að íbúar byggðarinnar fari eins og aðrir

Read Full Article →

Innlent | mbl | 5.9.2026 | 12:33 Eðlilegt að íbúar byggðarinnar fari eins og aðrir Einar segir að slökkviliðið hafi verið byrjað að hóta dagsektum vegna ástands húsnæðis borgarinnar. Samsett mynd/Eggert Setja bókamerki Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs segir ákvörðun Reykjavíkurborgar um að loka aðstöðu hjólhýsabyggðarinnar á Sævarhöfða koma til að kröfu slökkviliðsins. Hann segir jafnframt að velferðarsvið hafi sett sig í samband við íbúa hjólhýsabyggðarinnar og boðið fram aðstoð. Greint var frá því í gær að íbúar hjólhýsabyggðarinnar á Sævarhöfða hefðu fengið tilkynningu um að rafmagn yrði tekið af svæðinu og skrúfað fyrir vatn 1. nóvember. Þá yrði einnig lokað fyrir húsnæði á svæðinu þar sem íbúar hafa aðgang að uppþvottavél og þurrkara. Frétt af mbl.is „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ Slökkviliðið var farið að hóta dagsektum „Forsagan er sú að við þurftum að loka nokkrum húsnæðum, bara að kröfu slökkviliðsins. Það var gert í sumar. Þá var tekin ákvörðun um að segja upp leigusamningi við nokkra aðila, meðal annars þarna á Sævarhöfða og í Gufunesi og úti í Skerjafirði,“ segir Einar. Um hafi verið að ræða húsnæði í eigu borgarinnar sem ekki var vilji til að ráðast í miklar endurbætur á og það hafi verið leigt út til ýmissa hópa sem eins konar Covid-aðgerð á sínum tíma. „Síðan var slökkviliðið bara með það miklar athugasemdir að það var ekki hægt að halda því áfram,“ segir Einar og bætir við að byrjað hafi verið að hóta dagsektum. „Þess vegna var þessum leigusamningi uppi á Sævarhöfða sagt upp og þá hefur það í för með sér að þarna mun verða engin starfsemi og svæðið er að fara í uppbyggingu. Þá er eðlilegt að þau fari þaðan eins og aðrir.“ Geri meira en öll önnur sveitarfélög Spurður hvort þetta marki endalok hjólhýsabyggðarinnar á borgarlandi segir Einar: „Já, borgin hefur náttúrulega verið mjög skýr með það að það standi ekki til að koma upp sérstökum hjólhýsagarði, enda er ekki heimilt samkvæmt íslenskum lögum að vera með langtímabúsetu í hjólhýsi. Það er þá löggjafans, fyrst Alþingis, að setja lög um það.“ Þá bendir hann á að Reykjavíkurborg reki þegar stærsta félagslega húsnæðiskerfi á landinu. „Þar uppfyllum við okkar skyldur sveitarfélagsins um að útvega húsnæði fyrir fólk sem ekki getur sjálft búið eða staðið á eigin fótum hvað það varðar. Svo höfum við líka verið að styðja við uppbyggingu óhagnaðardrifins leiguhúsnæðis fyrir lægri tekjuhópana. Við erum að gera meira heldur en öll önnur sveitarfélög í landinu til þess að hjálpa efnaminna fólki að komast í öruggt húsnæði.“ Boðin ráðgjöf og stuðningur Á svæðinu á Sævarhöfða eru nú tólf hjólhýsi en í viðtali við mbl.is í gær sagði íbúi á hjólhýsabyggðinni að enginn hefði talað við íbúa um að bjóða annað úrræði. Einar segir það ekki rétt. „Það hefur verið haft samband við þau öll sem búa þarna af hálfu velferðarsviðs og þeim boðin ráðgjöf og stuðningur um það hver þeirra næstu skref gætu verið varðandi húsnæði og fleira.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Eðlilegt að íbúar byggðarinnar fari eins og aðrir Eitt stórt hláturskast hjá okkur Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Funda með Pútín í dag The bridal costume that survived a shipwreck Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Margir Íslendingar vilja ekki leysa ráðgátuna“ Hagtölur þjóðarinnar færðar yfir Borgartúnið Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Mest lesið Í gær Í vikunni Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Frelsið að fara úr að ofan Kos segir 47% styðja aðild Skjálftinn á svæði sem vert er að fylgjast með Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Sjö á slysadeild eftir árekstur Fóru saman á lögreglustöðina og voru handteknir Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Nýjast á mbl.is » Eðlilegt að íbúar byggðarinnar fari eins og aðrir Eitt stórt hláturskast hjá okkur Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Funda með Pútín í dag The bridal costume that survived a shipwreck Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Rafmagn komið aftur á „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Tveir handteknir af sérsveitinni á Akureyri Mest lesið Í gær Í vikunni Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Frelsið að fara úr að ofan Kos segir 47% styðja aðild Skjálftinn á svæði sem vert er að fylgjast með Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Sjö á slysadeild eftir árekstur Fóru saman á lögreglustöðina og voru handteknir Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn

Share this article