- What: Happy Campers sold to Blue Mountain
- Impact: Business acquisition in the tourism sector
Sverrir Þorsteinsson, fyrrverandi meðeigandi Happy Campers, var meðal þeirra 150 einstaklinga sem voru með mestar fjármagnstekjur í fyrra en tekjur hans námu 256 milljónum. Sverrir og eiginkona hans, Herdís Jónsdóttir, stofnuðu Happy Campers árið 2009 en greint var frá því í apríl í fyrra að Arctic Adventures hefði fest kaup á félaginu. Í lok árs 2024 var félagið að fullu í eigu Blue Mountain ehf. en Sverrir og Herdís eru stærstu hluthafarnir með 30% hlut hver. Börn þeirra, Fanndís María, Haukur, Jón og Þorsteinn, eiga 10% hlut hver. Blue Mountain hagnaðist um 1,2 milljarða króna í fyrra en söluhagnaður hlutabréfa nam ríflega milljarði króna. Þá nam hagnaður af sölu rekstrarfjármuna 178 milljónum en fyrirtækið seldi einnig fasteign sína að Stapabraut 21 í Reykjanesbæ á árinu. Samtals nam söluverð fasteignar og hlutabréfa tæplega 1,3 milljörðum króna. Stjórn lagði til að milljarður yrði greiddur í arð vegna ársins 2025. Happy Campers ehf. hagnaðist um 117 milljónir í fyrra, samanborið við 217 milljónir árið áður. Félagið hefur skilað hagnaði á hverju ári, fyrir utan faraldursárið 2020 þegar 67 milljóna tap var af rekstrinum. Veltan nam 835 milljónum í fyrra en árið áður, sem var metár, nam hún 943 milljónum. Eignir voru bókfærðar á 1,2 milljarða í árslok 2025 og eigið fé nam 346 milljónum. Fjallað var um tekjuhæstu Íslendingana í Viðskiptablaðinu . Hér má finna lista yfir þá 150 Íslendinga sem höfðu mestar fjármagnstekjur árið 2025. Listinn byggir á útreikningi samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra. Um er að ræða skattskyldar fjármagnstekjur, þ.e. vaxta- og leigutekjur, arðgreiðslur, söluhagnað og eftir atvikum höfundarréttargreiðslur.