Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hækka bankaskattinn svokallaða úr 0,145% í 0,254%. Um er að ræða 75% hækkun. Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 sem fjármálaráðherra kynnti í morgun. Gert er ráð fyrir að hækkun bankaskattsins skili ríkissjóði 6 milljörðum króna í auknar skatttekjur á næsta ári. Áætlað er að hann skili ríkissjóði 13,8 milljörðum króna árið 2027, en til samanburðar gera fjárlög ársins 2026 ráð fyrir 7,8 milljarða króna tekjum af bankaskattinum. Skattstofn bankaskatta er heildarskuldir fjármálafyrirtækja sem hafa heimild til að taka við innlánum að teknu tilliti til 50 milljarða króna frítekjumarks. „Bankaskatturinn var fyrst tekinn upp árið 2011 og hefur gjaldhlutfallið verið breytilegt frá upptöku hans. Með fyrirhugaðri breytingu hækkar gjaldhlutfallið um 0,109 prósentustig en verður áfram lægra en það var á árunum 2014–2020 þegar hlutfallið var 0,376%,“ segir í frumvarpinu. Auk bankaskattsins eru tveir aðrir sérstakir skattar lagðir á fjármálafyrirtæki hérlendis sem ekki eru lagðir á önnur fyrirtæki. Samtals skiluðu þessir þrír sérstöku skattar um 17,7 milljörðum króna í fyrra. Bankaskatturinn var upphaflega 0,041% en var ríflega nífaldaður upp í 0,376% árið 2013 til að standa straum af kostnaði við Leiðréttinguna. Hlutfallið stóð óbreytt í 0,376% fram til ársins 2021 þegar það var lækkað í 0,145%.