Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hækka bankaskattinn úr 0,145% í 0,254% af skuldum fjármálafyrirtækja umfram 50 milljarða króna frítekjumark. Hækkunin nemur 0,109 prósentustigum, eða um 75%. Fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir að breytingin auki tekjur ríkissjóðs af skattinum um sex milljarða króna árið 2027. Tekjur af bankaskattinum eiga þannig að nema 13,8 milljörðum króna á næsta ári, samanborið við 7,8 milljarða samkvæmt fjárlögum þessa árs. Hækkunin vinnur gegn yfirlýstu markmiði stjórnvalda um að „skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta“. Stjórnvöld virðast þó fullmeðvituð um að kostnaðurinn lendir að hluta á lántakendum, ef marka má fyrri ummæli bæði Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Daða Más Kristóferssonar um áhrif bankaskattsins. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift