Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þorgerður sagði bankaskattinn skila sér beint út í verðlag

Read Full Article →

Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er boðuð hækkun bankaskattsins svokallaða úr 0,145% í 0,254%. Um er að ræða 75% hækkun sem á að skila ríkissjóði ríflega 6 milljarða króna tekjuauka á ári. Sjá einnig Bankaskatturinn hækkaður um 75% Ræða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, núverandi utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, í pontu Alþingis frá því í júní 2019 hefur verið rifjuð upp í ljósi hinnar fyrirhuguðu skattheimtu. Þorgerður Katrín, sem var þá í stjórnarandstöðu, furðaði sig á að þáverandi ríkisstjórn hefði ákveðið að fresta lækkun bankaskattsins sem stóð þá í 0,376%. „Við erum með allt of háan bankaskatt, miklu, miklu hærri en öll Norðurlöndin,“ sagði Þorgerður og bætti við að hún væri almennt hrifin af samanburði við hin Norðurlöndin. Sjá einnig Sértækir skattar á banka fimm­falt hærri en í Vestur-Evrópu Hún sagði jafnframt að bankaskatturinn leiði til kostnaðarauka fyrir bankana „sem skilar sér náttúrulega beint út í verðlag til viðskiptavina bankanna“. Það þá, núna hafa vindar breyst. pic.twitter.com/GLHdLEppdL — Jon Petur Zimsen (@JPZimsen) September 7, 2026 Þorgerður sagði miður að þáverandi ríkisstjórn hefði ákveðið að fresta lækkun bankaskattsins, m.a. í ljósi þess hvaða áhrif það hefði á mögulegt söluferli á bönkunum. „Ég tel það vera miður, sérstaklega núna af því að það eru verkefni fram undan sem við þurfum og verðum að fara í til þess að minnka áhrif niðursveiflunnar á fjölskyldur, einstaklinga og ekki síst fyrirtæki - ekki síst lítil og meðalstór fyrirtæki hér vítt og breitt um landið.“ Bankaskatturinn var lagður á árið 2011 og var upphaflega 0,041%. Skatturinn var ríflega nífaldaður upp í 0,376% árið 2013 til að standa straum af kostnaði við Leiðréttinguna. Hlutfallið stóð óbreytt í 0,376% fram til ársins 2021 þegar það var lækkað í 0,145%. Sem fyrr segir stendur nú til að hækka hlutfallið upp í 0,254%. Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, deildi ræðu Þorgerðar Katrínar frá árinu 2019, í færslu á X í morgun.

Share this article