Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Stefnir í 67,5 milljarða halla í ár

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 11.9.2026 | 9:50 Stefnir í 67,5 milljarða halla í ár Allt stefnir í að afkoma ríkissjóðs verði mun verri í ár en áætlað var þegar fjárlög þessa árs voru afgreidd. mbl.is/Karítas Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Þungar áhyggjur af fjárlögum „Það sendir kolröng skilaboð“ Undanþágur ekki það sama og glufur Ekki upplýst um söluheimild á flugstöðinni Gagnrýna 100 prósenta hækkun komugjalda » Fleiri tengdar fréttir Útlit er fyrir að afkoma ríkissjóðs verði tæpum 40 milljörðum króna lakari en gert var ráð fyrir í fjárlögum yfirstandandi árs, en skv. nýframkomnu frumvarpi til fjárlaga stefnir í 67,5 milljarða halla á ríkissjóði í stað 28,1 milljarðs sem fjárlög gerðu ráð fyrir að yrði á þessu ári. Tekjur ársins 2026 eru nú áætlaðar 7,9 milljörðum meiri en gert var ráð fyrir, en gjöldin hlaupa 47,2 milljörðum fram úr áætlun. Þetta má sjá í nýframkomnu fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 sem mælt var fyrir á Alþingi í gær. Við framsetningu talnanna er byggt á alþjóðlegum staðli um opinber fjármál sem felur í sér að tekjur eru færðar á þeim tíma þegar krafa til þeirra myndast en ekki þegar álagning á sér stað. Hallinn meira en tvöfaldast „Þetta er grafalvarlegt. Það vantaði ekki yfirlýsingarnar um aga í ríkisrekstri og ný vinnubrögð og hvaðeina, en raunveruleikinn er allt annar. Það er ekki bara að hallinn meira en tvöfaldist heldur stóreykst lánsfjárþörf ríkisins. Það vita allir að það hjálpar ekki til í baráttunni við verðbólguna, þegar ríkissjóður er svona þurftarfrekur á skuldamarkaði,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið, en hann á sæti í fjárlaganefnd þingsins. Spurður hvort ástæða sé til að leggja trúnað á yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög á næsta ári, segir Guðlaugur Þór að svo sé ekki. „Þessi ríkisstjórn er búin að gefast upp. Við þekkjum yfirlýsingar hennar frá því hún tók við, í aðdraganda síðustu fjárlaga og við afgreiðslu þeirra og svo sjáum við niðurstöðuna. Þar fara ekki saman hljóð og mynd og það hefur ekkert staðist af því sem hún hefur sagt um sín eigin fjárlög, um breytt vinnulag, aðhald og aga í ríkisrekstri, þrátt fyrir að mjög margt hafi fallið með henni, eins og t.a.m. hærri tekjur,“ segir Guðlaugur Þór. Skattar skila meiri tekjum Skattar munu þó skila sér betur en ætlað hafði verið, en tekjuskattur lögaðila var áætlaður 153,7 milljarðar en nú stefnir í að hann verði 12,2 milljörðum meiri eða 165,9 milljarðar. Sama gildir um vaxtatekjur sem nú er gert ráð fyrir að skili 57,8 milljörðum í stað 53 milljarða áður. Aðrir stórir tekjuliðir eru einnig upp á við. Þannig er áætlað að ríkisfyrirtæki skili meiri tekjum en ætlað hafði verið, einnig tekjuskattur einstaklinga, fjármagnstekjuskattur, tollar og aðflutningsgjöld, erfðafjárskattur, bifreiðagjald og önnur vörugjöld. Skila þessir liðir 9 milljörðum króna meiri tekjum en ráð var fyrir gert. En það eru ekki allir tekjupóstar sem skila meiri tekjum en áætlað var. Þannig er áætlað að liðir eins og kílómetragjald, tóbaksgjald, kolefnisgjald, áfengisgjald, veiðigjald, vörugjald af ökutækjum og virðisaukaskattur skili allir færri krónum í ríkissjóð en ætlað var og nemur heildarfjárhæðin 20,2 milljörðum. Mestu munar þar um lægri virðisaukaskatt en hann er talinn skila 13,1 milljarði minna en áætlun gerði ráð fyrir. Þegar kemur að útgjaldaliðum fjárlaga þessa árs sést að stórir liðir, eins og laun og launatengd gjöld, fara 3,9 milljörðum fram úr áætlun, lífeyrisskuldbindingar um 3,8 milljarða, fjármagnskostnaður um 20,2 milljarða, sjúkratryggingar um 12,1 milljarð og félagsleg aðstoð um 2,8 milljarða, svo nokkur dæmi séu nefnd. Sú skýring er gefin á hinni miklu framúrkeyrslu Sjúkratrygginga Íslands, sem nemur 15% umfram áætlun, að kostnaður vegna lyfjakaupa, sjúkraþjálfunar, læknisþjónustu, hjálpartækja og sjúkrahúskostnaður erlendis sé hærri en ætlað var. Þá má nefna að málefnasviðin sjúkrahúsþjónusta, þjónusta utan sjúkrahúsa, hjúkrun og endurhæfing og lyf og lækningavörur eru samanlagt 22,6 milljörðum yfir fjárlögum, en halda verður til haga að hluti þess kostnaðar skarast við kostnað Sjúkratrygginga. Hreinn lánsfjárjöfnuður ríkissjóðs er áætlaður 48,5 milljörðum lakari en gert hafði verið ráð fyrir og verður 128,3 milljarðar í stað 79,8 milljarða eða ríflega 60% verri en áætlunin, en hreinn lánsfjárjöfnuður er það fé sem má nýta til að greiða niður skuldir án þess að ganga á handbært fé. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Þungar áhyggjur af fjárlögum „Það sendir kolröng skilaboð“ Undanþágur ekki það sama og glufur Ekki upplýst um söluheimild á flugstöðinni Gagnrýna 100 prósenta hækkun komugjalda » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Viljum skrifa nýjan kafla í sögubækurnar Þriðjungur til í að skilja bílinn eftir heima Stefnir í 67,5 milljarða halla í ár Tveir drepnir í drónaárás á bensínstöð Vara við vanfjármögnun Umræðan Fiðrildaáhrif og lítil korn „… miðar að því að draga úr vægi verðtryggingar“ – fyrir hvern? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 3,2 milljarða halli á rekstri borgarinnar Lýsir alvarlegri stöðu borgarinnar Handvirk vinna á landamærum hægir á öllu ferlinu Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Mest lesið Í gær Í vikunni Þiggja fé án þess að vinna handtak Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Minningarstund um Hönnuh Jane Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Lýsir alvarlegri stöðu borgarinnar Trump hringdi í Bjarna og vildi innlima Ísland Vilja gera altjóna hús að ferðamannastað Einn fluttur á bráðadeild Kveður eftir aldarfjórðung í starfi Hafa þróað aðferð sem virkar fyrir alla Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Ökumaður krossara handtekinn eftir eftirför Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Trump hringdi í Bjarna og vildi innlima Ísland Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Eldur í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ Nýjast á mbl.is » Viljum skrifa nýjan kafla í sögubækurnar Þriðjungur til í að skilja bílinn eftir heima Stefnir í 67,5 milljarða halla í ár Tveir drepnir í drónaárás á bensínstöð Vara við vanfjármögnun Umræðan Fiðrildaáhrif og lítil korn „… miðar að því að draga úr vægi verðtryggingar“ – fyrir hvern? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heitasti mánuður sem mælst hefur um allan heim Ekki upplýst um söluheimild á flugstöðinni Svona gæti gervigreind nýst á hjúkrunarheimilum Megi skoða hvort stoppa eigi slakari nemendur af Mest lesið Í gær Í vikunni Þiggja fé án þess að vinna handtak Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Minningarstund um Hönnuh Jane Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Lýsir alvarlegri stöðu borgarinnar Trump hringdi í Bjarna og vildi innlima Ísland Vilja gera altjóna hús að ferðamannastað Einn fluttur á bráðadeild Kveður eftir aldarfjórðung í starfi Hafa þróað aðferð sem virkar fyrir alla Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Ökumaður krossara handtekinn eftir eftirför Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Trump hringdi í Bjarna og vildi innlima Ísland Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Eldur í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“

Share this article