Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Bilið breikkar mest á Íslandi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 8.9.2026 | 7:45 Bilið breikkar mest á Íslandi Í fyrri hluta skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), sem kom út í morgun, er frammistaða próftaka í náttúruvísindum sundurliðuð eftir uppruna nemenda. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Tengdar fréttir Íslenska Er vandinn víðtækari en lestur á Laxness? Hófst allt með örlagaríku snappi Fólk verði að takast á við arfinn á sinn hátt „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Birtingarmynd miklu stærri vanda » Fleiri tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Niðurstöður PISA birtar á morgun Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Inga tekur af skarið og setur símabann » Fleiri tengdar fréttir Niðurstöður PISA-könnunarinnar sýna fram á nýtilkominn og verulegan mun á frammistöðu nemenda eftir því hvort þeir eru af íslensku eða erlendu bergi brotnir. Í skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), sem kom út í morgun, er frammistaða próftaka í náttúruvísindum sundurliðuð eftir uppruna nemenda. Könnunin var lögð fyrir fimmtán ára gamla nemendur vorið 2025. Þar kemur fram að nemendur af erlendum uppruna hlutu að meðaltali 390 stig í náttúruvísindahluta prófsins, gegn 455 stigum nemenda sem eiga íslenska foreldra og 497 stiga meðalframmistöðu innan OECD-ríkjanna. Alls munar 65 stigum innanlands. Eftir leiðréttingu OECD fyrir bæði félagslegri og efnahagslegri stöðu nemenda af erlendum uppruna má sjá að þeir skoruðu að meðaltali 40 stigum lægra í hluta könnunarinnar sem sneri að náttúruvísindum en jafnaldrar þeirra sem eiga íslenska foreldra. Frétt af mbl.is Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Frammistaða nemenda á Íslandi í PISA dalaði milli ára. Bilið nýtilkomið Í skýrslunni er það sérstaklega tekið fram að fjölbreyttari samsetning nemendahópsins vegna fjölgunar innflytjenda skýri einungis fáein stig af því falli sem fram kemur í flestum löndum og því sé ekki hægt að rekja meginorsökina til þess. Einnig er skýrt tekið fram að niðurstöður PISA-könnunarinnar 2025 skjóti engum stoðum undir þá fullyrðingu að hærra hlutfall nemenda af erlendum uppruna tengist lakari námsárangri nemendahópsins, heldur sýndi könnunin þvert á móti fram á samsvörun milli hærra hlutfalls nemenda af erlendum uppruna og betri frammistöðu í náttúruvísindum að meðaltali. Í flestum löndum hélst frammistöðubilið milli nemenda af innlendum og erlendum uppruna óbreytt á milli 2022 og 2025 þegar kom að náttúruvísindum. Það var einungis á Íslandi, í Portúgal og á Spáni sem bilið breikkaði talsvert. Niðurstöður PISA-könnunarinnar sem lögð var fyrir nemendur 10. bekkjar vorið 2022 sýndu fram á talsverðan mun í frammistöðu nemenda af íslenskum og erlendum uppruna hvað varðar lesskilning, eða sem nam rúmlega 60 stigum. Slíkrar gjár gætti þá aftur á móti ekki þegar kom að náttúruvísindum. Frétt af mbl.is Hafa áhyggjur af börnunum í núverandi fyrirkomulagi Frétt af mbl.is „Það eru ansi margar spurningar sem vakna“ Íslenskan lykilatriði Í ljósi þessarar nýtilkomnu gjár ber að skoða hvers vegna nemendum af erlendum uppruna virðist ganga verr að fóta sig í menntakerfinu, og til hvaða ráða megi grípa til þess að koma sem best við móts við þá. Sérfræðingar í íslensku og kennslu, þeirra á meðal læsisfræðingurinn Sigríður Ólafsdóttir, hafa ítrekað bent á mikilvægi þess að kenna börnum innflytjenda íslensku markvisst frá unga aldri, enda sé þróun færni í nær öllum námsgreinum algjörlega samofin framförum í tungumáli skólans samkvæmt. Íslenskukunnátta er þannig grundvallarþáttur í öllu því námi sem börnin stunda á meðan á skólagöngu þeirra stendur, enda torvelt að öðlast færni í fagi sem kennt er á íslensku ef skilningur á tungumálinu er ekki fyrir hendi. Frétt af mbl.is „Þetta er auðvitað algerlega forkastanlegt“ Frétt af mbl.is Börnin koma ósjálfbjarga úr íslenskuverum Jókst hvergi meira en hérlendis Eftir að leiðrétt hafði verið fyrir efnahags- og samfélagsstöðu nemenda af erlendum uppruna og það tungumál sem þeir töluðu heima fyrir var munurinn á frammistöðu nemenda af íslenskum og erlendum uppruna 40 stig. Munurinn á frammistöðu íslenskra og erlendra barna jókst um 28 stig í náttúrufræðihluta prófsins, og jókst hann hvergi meira en hérlendis ef marka má það sem fram kemur í skýrslunni. Í Portúgal jókst frammistöðumunurinn um 14 stig, en slíkur munur var hvorki fyrir hendi á Íslandi né í Portúgal í niðurstöðum PISA-könnunarinnar árið 2022. Hæsta hlutfall sem um getur innan OECD Í könnuninni kemur jafnframt fram að nemendur af erlendum uppruna upplifðu gjarnan minni stuðning frá fjölskyldu sinni við námið en nemendur sem eru af íslensku bergi brotnir og leituðu sjaldnar til foreldra sinna til þess að fá aðstoð við námið. Þá segjast meira en 95% fyrstu kynslóðar innflytjenda á Íslandi tala annað tungumál heima en prófið er lagt fyrir á, sem er hæsta hlutfall sem um getur innan OECD. Vera kann að örðugleikar foreldra af erlendum uppruna við að aðstoða börn sín við námið, sem fram fer á íslensku, sé ein af fjölþættum orsökum þess að nemendum af erlendum uppruna vegnar verr á þessari alþjóðlegu könnun en nemendum sem eiga íslenskar rætur. Frétt af mbl.is Of seint eftir tíu ár Óásættanleg staða Íslensk málnefnd stóð fyrir fróðlegu málþingi í maí, um íslenskukennslu og stöðu læsis í grunnskólum, í samstarfi við sérfræðinga á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Elín Þöll Þórðardóttir, prófessor í málvísindum við McGill-háskóla í Montréal, sagði þar meðal annars að óásættanlegt væri hvernig fjöldi ungmenna gæti vaxið úr grasi á Íslandi en misst af því að ná góðum tökum á þjóðtungu landsins sem þau búa í. Á málþingið mættu tveir þingmenn, hvorugur úr röðum ríkisstjórnarinnar. Samt var þangað boðið öllum nefndarmönnum allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis. Frétt af mbl.is Enginn mætti frá ríkisstjórninni Frétt af mbl.is Víðir vill ekki tjá sig Frétt af mbl.is Ísland á hættulegum stað vegna vanrækslu Tengdar fréttir Íslenska Er vandinn víðtækari en lestur á Laxness? Hófst allt með örlagaríku snappi Fólk verði að takast á við arfinn á sinn hátt „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Birtingarmynd miklu stærri vanda » Fleiri tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Niðurstöður PISA birtar á morgun Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Inga tekur af skarið og setur símabann » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bilið breikkar mest á Íslandi Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Skorað á Þorgerði að segja af sér Flytja lög eftir heiðurslaunaþega Segir Rússa reiðubúna til samningaviðræðna Umræðan Farsæld í farvegi 60 milljarða skattahækkun á tveimur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum Aðkoma ríkisins ekki á kostnað hallaleysis Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Leikstjórinn er Vestur-Íslendingur Mest lesið Í gær Í vikunni Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Og hoppaðu upp í...“ Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Bók Evu Bjargar á meðal þeirra bestu í Bretlandi í september Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum Norðurljós í Hafnarfirði Leikstjórinn er Vestur-Íslendingur Hvar er draumurinn? fór beinustu leið á toppinn Hernaðarandstæðingar mótmæla harðlega Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nýjast á mbl.is » Bilið breikkar mest á Íslandi Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Skorað á Þorgerði að segja af sér Flytja lög eftir heiðurslaunaþega Segir Rússa reiðubúna til samningaviðræðna Umræðan Farsæld í farvegi 60 milljarða skattahækkun á tveimur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bilið breikkar mest á Íslandi Skattarnir og gjöldin sem munu taka breytingum Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund „Gríðarleg vonbrigði“ fyrir ferðaþjónustuna Mest lesið Í gær Í vikunni Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Og hoppaðu upp í...“ Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Bók Evu Bjargar á meðal þeirra bestu í Bretlandi í september Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum Norðurljós í Hafnarfirði Leikstjórinn er Vestur-Íslendingur Hvar er draumurinn? fór beinustu leið á toppinn Hernaðarandstæðingar mótmæla harðlega Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið

Share this article