Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tekju­hæst í verk­taka­bransanum

Read Full Article →

Forstjórar og eigendur ýmissa verktakafyrirtækja eru meðal þeirra sem eru á lista yfir 150 fjármagnstekjuhæstu Íslendingana í fyrra. Þorvaldur H. Gissurarson, forstjóri og eigandi ÞG Verk, var tekjuhæstur í bransanum með 552 milljónir. ÞG verktakar ehf. veltu 16,3 milljörðum króna í fyrra og nam hagnaður félagsins tæplega 1,5 milljörðum. Hjalti Gylfason, stjórnarformaður og meðeigandi Mannverks, og Jónas Már Gunnarsson, forstjóri og meðeigandi Mannverks, voru þá með 355 milljónir hvor. Mannverk hefur ekki skilað ársreikningi fyrir árið 2025 en árið 2024 velti fyrirtækið 17,6 milljörðum króna og hagnaðist um 411 milljónir. Rannveig Eir Einarsdóttir, forstjóri og meðeigandi Reir verk, var með 350 milljónir en Reir verk velti 4,1 milljarði í fyrra og hagnaðist um 123 milljónir. Pétur Bjarnason, forstjóri og meðeigandi Klettáss, var með 339 milljónir. Klettás hefur ekki skilað ársreikningi en árið 2024 nam velta samstæðunnar tæplega 1,7 milljörðum og hagnaður nam 640 milljónum. Guðbrandur Torfason, meðeigandi GR Verk, var með 290 milljónir en GR Verk velti ríflega 3 milljörðum og hagnaðist um 23 milljónir árið 2024. Meðeigendur Dverghamra, Guðmundur Ragnar Guðmundsson og Magnús Jóhannes Sigurðsson, voru með 282 og 253 milljónir. Dverghamrar veltu 1,7 milljörðum og högnuðust um 16 milljónir í fyrra en árið áður nam veltan 3,6 milljörðum og hagnaðurinn 584 milljónum. Loks voru Aðalgeir J. Hólmsteinsson, framkvæmdastjóri og meðeigandi Alverks, og Gísli Örn Bjarnhéðinsson, fjármálastjóri og meðeigandi Alverks, með 256 og 255 milljónir. Al-verk ehf. velti 2,9 milljörðum árið 2024 og hagnaðist um 42 milljónir. Fjallað var um tekjuhæstu Íslendingana í Viðskiptablaðinu . Hér má finna lista yfir þá 150 Íslendinga sem höfðu mestar fjármagnstekjur árið 2025. Listinn byggir á útreikningi samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra. Um er að ræða skattskyldar fjármagnstekjur, þ.e. vaxta- og leigutekjur, arðgreiðslur, söluhagnað og eftir atvikum höfundarréttargreiðslur.

Share this article