Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Snemma beygist krókurinn

Read Full Article →

Íslensk útgáfa barnabókarinnar Geymdu akörnin þín (e. Save Your Acorns) eftir Robert Gardner er komin út en bókin er sniðin að börnum á aldrinum fimm til sjö ára. Útgáfan er samstarfsverkefni Roberts Gardner, Haga, Viðskiptablaðsins og Framtíðarsýnar. Markmiðið er að sem flest íslensk börn eignist bókina og fái tækifæri til að kynnast grundvallaratriðum fjármálalæsis snemma á lífsleiðinni. Bókin verður seld á kostnaðarverði, 500 krónur eintakið, í Hagkaupum á meðan birgðir endast. Robert Gardner afsalar sér jafnframt höfundalaunum vegna íslensku útgáfunnar. Í bókinni, sem kom fyrst út í Bretlandi árið 2016, fylgja lesendur íkornunum Óliver og Amalíu sem fá að læra um mikilvægi sparnaðar hjá afa sínum. Með sögum þar sem birnir, apar, bananar, ber og akörn koma m.a. við sögu kynnast þau afleiðingum þess að eyða öllu strax, mikilvægi þess að deila með öðrum og hvernig reglulegur sparnaður getur vaxið með tímanum. Meginhugmynd bókarinnar er einföld en áhrifarík: Akörn (fræ eikartrjáa) sem eru geymd geta vaxið í tré sem bera enn fleiri akörn. Þannig kynnir bókin börnum á aðgengilegan hátt hvernig sparnaður getur aukist og skapað tækifæri til framtíðar. Geymdu akörnin þín er komin í verslanir Hagkaupa. Bókin er seld á kostnaðarverði, 500 krónur eintakið. © Aðsend mynd (AÐSEND) Robert Gardner er breskur fjárfestir, frumkvöðull og sérfræðingur í lífeyris- og eignastýringu með um 25 ára reynslu af fjármálamörkuðum. Hann er stofnandi Redington, eins af leiðandi ráðgjafarfyrirtækjum Bretlands á sviði lífeyrismála, og RedStart (nú Money Ready), góðgerðasamtaka sem sinna fjármálafræðslu fyrir börn og ungmenni. Í dag er hann forstjóri og meðstofnandi Rebalance Earth, fyrirtækis sem vinnur að fjármögnun verndar og endurheimtar náttúrunnar. Robert starfaði á árum áður sem fjárfestingastjóri hjá St. James Place, þar sem hann hafði yfirumsjón með um 150 milljarða punda eignasafni. Robert hefur um árabil verið ötull talsmaður fjármálalæsis og sjálfbærni og skrifaði Geymdu akörnin þín til að hjálpa börnum og fjölskyldum þeirra að tileinka sér góðar fjármálavenjur frá unga aldri. Hann situr í stjórn Money Ready, góðgerðarsam­taka sem vinna að eflingu fjármálalæsis í Bretlandi. Robert hefur gefið út eina bók til viðbótar, FR££DOM: Earn It, Keep It, Grow It, sem kom út árið 2023 og er ætluð ungu fólki. Bókin fjallar á aðgengilegan hátt um hvernig hægt er að afla, varðveita og byggja upp fjárhagslegt sjálfstæði. Greppikló helsta fyrirmyndin Robert segir mikilvægt að hefja samtalið um peninga snemma enda geti litlar venjur sem mótast á unga aldri fylgt fólki alla ævi. „Um leið þarf að gæta þess að hafa boðskapinn einfaldan. Að mínu mati þurfa börn fyrst og fremst að tileinka sér fjórar grunnvenjur: að afla peninga, geyma þá, ávaxta þá og loks gefa af þeim. Í bókinni er þetta gert á áþreifanlegan hátt með einfaldri reglu, sem jafnvel fimm ára barn getur skilið, sem snýst um að geyma tvö af hverjum tíu akörnum. Akörnin eru jafnframt notuð til að útskýra hvernig peningar geta vaxið með tímanum og sýna þannig áhrif vaxtavaxta á einfaldan og auðskiljanlegan hátt. Markmiðið er að efla sjálfstraust barna í fjármálum, hjálpa þeim að skilja peninga og gera þau færari um að taka eigin ákvarðanir og hafa stjórn á fjármálum sínum.“ Spurður um hvernig það kom til að hann ákvað að skrifa og gefa út barnabók til að efla fjármálalæsi segir Robert hugmyndina hafa kviknað skömmu eftir fæðingu eldri dóttur sinnar. „Árið 2014 fæddist eldri dóttir mín. Ég varði þá miklum tíma í að sjá um hana, gefa henni, skipta á henni o.s.frv. Einn daginn fékk ég þá hugmynd í kollinn að skrifa barnabók fyrir yngstu börnin í grunnskóla, fimm til sjö ára. Bókin er ekki aðeins skrifuð fyrir börn heldur einnig foreldra þeirra, frænkur, frændur, ömmur og afa. Þegar ég velti bókinni fyrir mér vissi ég að hún yrði að vera áhugaverð og grípandi. Vinsælasta og besta breska bókin fyrir þennan aldurshóp er Greppikló eftir Juliu Donaldson. Ég leit á þá bók sem fyrirmynd og skoðaði því hversu mörg orð og blaðsíður væru í henni og þar fram eftir götunum. Ég vildi hafa bókina ríkulega myndskreytta og fann frábæran teiknara. Síðan skrifaði ég bókina og hún fór líklega í gegnum sautján drög áður en hún var svo loks gefin út. Ég sendi hana m.a. til grunnskólakennara til að einfalda orðalagið eins mikið og unnt var.“ Hann kveðst hafa litið á bókina sem góða leið til að vekja athygli á því hvernig megi afla peninga og spara þá. Það sem hann hafi þó helst viljað koma til skila sé hugmyndafræðin á bak við vaxtavexti. „Foreldrar mínir kenndu mér mikilvægi þess að leggja hart að sér og afla tekna. Þau voru mjög góð í að spara og ég lærði strax frá unga aldri mikilvægi þess að leggja fyrir. Þau voru hins vegar ekki jafn góð í að láta peningana vaxa. Ég skildi vaxtavexti ekki fyrr en ég hóf störf í banka- og fjármálageiranum. Þau skilaboð sem ég vildi koma á framfæri í bókinni voru því: aflaðu peninga, geymdu þá, láttu þá vaxa – sem er líklega mikilvægast – og deildu þeim eða gefðu til baka. Í bókinni eru ávextir myndlíking fyrir peninga: bananar apanna, ber bjarnanna og akörn íkornanna. Ég vildi líka skapa þrjár eins konar mannlegar persónugerðir sem endurspegla hvernig fólk háttar fjármálum sínum.“ Meðal sögupersóna í bókinni eru eyðsluglaðir apar sem sólunda góðri bananauppskeru á augabragði, sem kemur svo í bakið á þeim síðar þegar illa árar og uppskeran er uppurin. „Ég fæ fjölda skilaboða frá foreldrum sem segjast óska þess að hafa lesið bókina fyrr. Þau tengja sjálf sig við sögupersónurnar og segja: „Ég er svo mikill api.“ Birnirnir eru aftur á móti mjög skynsamir. Þeir vita að veturinn kemur fyrr en síðar og spara fimmtung berjauppskerunnar. Þeir hjálpa samt sem áður sársvöngum öpunum og þar kemur lokaskrefið um að deila inn í söguna. Birnirnir hafa þó ekki uppgötvað „töfraformúlu“ íkornanna. Þeir geyma tvö af hverjum tíu akörnum, sem um leið skjóta rótum og verða að trjám sem gefa fleiri akörn. Raunverulegir töfrar fjármálanna felast nefnilega í vaxtavöxtum. Vaxtavextir þurfa langan tíma og því er mikilvægt að byrja snemma. Ef þú gróðursetur akarn verður það að tré, tréð gefur síðan af sér fleiri akörn og þannig fara „peningarnir“ að vinna fyrir þig. En rétt eins og með vöxt eikartrjáa þá tekur þetta langan tíma.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article