Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Barnabók fylgdi með Viðskiptablaðinu í dag

Read Full Article →

Framtíðarsýn bókaútgáfa gefur út barnabókina Geymdu akörnin þín eftir Robert Gardner. Íslenska útgáfan er samstarfsverkefni Roberts Gardner, Haga, Viðskiptablaðsins og Framtíðarsýnar. Bókin er hugsuð fyrir börn á aldrinum 5 til 7 ára. Hún verður seld í Hagkaupum og kostar eintakið 500 krónur. Bókinni var dreift til áskrifenda Viðskiptablaðsins með blaðinu sem kom út í morgun. Geymdu akörnin þín ( Save Your Acorns ) er skemmtileg og fræðandi barnabók. Í henni fylgja lesendur íkornunum Óliver og Amalíu sem læra um mikilvægi sparnaðar hjá afa sínum. Með sögum af björnum, öpum, berjum og akörnum kynnast þau afleiðingum þess að eyða öllu strax. Þau læra jafnframt um mikilvægi þess að deila með öðrum og hvernig reglulegur sparnaður getur vaxið með tímanum. Meginhugmynd bókarinnar er einföld en áhrifarík: Akörn sem eru geymd geta vaxið í tré sem bera enn fleiri akörn. Þannig kynnir bókin börnum á aðgengilegan hátt hvernig sparnaður getur aukist með tímanum og skapað tækifæri til framtíðar. Ásgeir og Inga verða með erindi Í tilefni af útgáfu íslenskrar þýðingar bókarinnar býður Seðlabanki Íslands til málstofu um fjármálalæsi og fjármálafræðslu fyrir börn og ungmenni á morgun kl. 15. Hægt verður að fylgjast með málstofunni í vefstreymi á vb.is. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Robert Gardner og Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna-Lífsverks, verða með erindi. Robert Gardner, höfundur bókarinnar, afsalar sér höfundalaunum vegna íslensku útgáfunnar. Finna má viðtal við hann í Viðskiptablaðinu sem kom út í dag. Sjá einnig Snemma beygist krókurinn Garnder er stofnandi Redington sem er eitt af leiðandi ráðgjafarfyrirtækjum Bretlands á sviði lífeyrismála. Hann stofnaði einnig RedStart sem sinnir fjármálafræðslu fyrir börn og ungmenni og er hluti af góðgerðarsamtökunum Money Ready. Í dag er hann forstjóri og meðstofnandi Rebalance Earth sem vinnur að fjármögnun verndar og endurheimtar náttúrunnar. Robert Gardner hefur um árabil verið ötull talsmaður fjármálalæsis og sjálfbærni. Hann skrifaði Geymdu akörnin þín til að hjálpa börnum og fjölskyldum þeirra að tileinka sér góðar fjármálavenjur frá unga aldri. Hann situr einnig í stjórn Money Ready sem eru góðgerðarsamtök sem vinna að eflingu fjármálalæsis í Bretlandi. Farsæl skref í fjármálum kemur út í annarri og endurbættri útgáfu Framtíðarsýn gefur í ágúst út aðra og endurbætta útgáfu bókarinnar Farsæl skref í fjármálum eftir Gunnar Baldvinsson. Bókin kom fyrst út árið 2020 og hefur síðan verið notuð víða við kennslu eldri nemenda í framhaldsskólum og að hluta til á háskólastigi. Frá fyrstu útgáfu hefur Snjöll skref í fjármálum bæst við bókaröðina. Sú bók er ætluð nemendum í upphafi framhaldsskóla og tók við hluta efnis úr Farsælum skrefum . Í nýrri útgáfu af Farsæl skref í fjármálum hefur því skapast svigrúm fyrir nýtt og ítarlegra efni. Meðal nýjunga er umfjöllun um skuldamælikvarða og lánþegaskilyrði, nýjar tegundir húsnæðislána og lykilupplýsingaskjöl. Einnig hefur verið bætt við fjölda sýnidæma sem auðvelda lesendum að tileinka sér efnið. Bókin er nú 208 blaðsíður en fyrsta útgáfan var 170 blaðsíður. Með nýrri útgáfu Farsælla skrefa í fjármálum gefur Framtíðarsýn út þrjár kennslubækur eftir Gunnar Baldvinsson um fjármál einstaklinga fyrir mismunandi aldurshópa. Fyrstu skref í fjármálum er ætluð nemendum 14–15 ára, Snjöll skref í fjármálum nemendum 16–17 ára og Farsæl skref í fjármálum nemendum 18 ára og eldri. Fjármálavit gefur bækurnar til kennslu í grunn- og framhaldsskólum og styður þannig við fjármálafræðslu ungs fólks. Nánari upplýsingar eru á www.fjarmalavit.is .

Share this article