Íslensk útgáfa barnabókarinnar Geymdu akörnin þín (e. Save Your Acorns) eftir Robert Gardner er komin út en bókin er sniðin að börnum á aldrinum fimm til sjö ára. Útgáfan er samstarfsverkefni Roberts Gardner, Haga, Viðskiptablaðsins og Framtíðarsýnar. Markmiðið er að sem flest íslensk börn eignist bókina og fái tækifæri til að kynnast grundvallaratriðum fjármálalæsis snemma á lífsleiðinni. Bókin verður seld á kostnaðarverði, 500 krónur eintakið, í Hagkaupum á meðan birgðir endast. Robert Gardner afsalar sér jafnframt höfundalaunum vegna íslensku útgáfunnar. Ástæðan fyrir því að Robert ákvað að einblína á markhópinn fimm til sjö ára er rannsókn Cambridge-háskóla frá árinu 2013 sem sýndi að sparnaðarvenjur einstaklinga mótast fyrir sjö ára aldur. „Að sama skapi hefur fjöldinn allur af könnunum verið gerður þar sem fullorðið fólk er spurt um hvað það hefði helst viljað læra í skóla. Flest öll algengustu svörin tengjast fjármálum einstaklinga og fjárfestingum. Samt er þetta ekki kennt í Bretlandi og víða annars staðar um heim. Það er bagalegt því fjármálalæsi er algjör grundvallarfærni.“ Robert stofnaði góðgerðasamtökin RedStart, sem heita í dag Money Ready, sem sinna fjármálafræðslu fyrir börn og ungmenni. Áður en ofangreind rannsókn kom fram einblíndu samtökin mest á fjármálafræðslu fyrir ungmenni en eftir að niðurstaðan lá fyrir var sjónum í auknum mæli beint að yngstu stigum grunnskólans. „Ég hef haft tvær meginhugmyndir að leiðarljósi. Annars vegar að peningar geti verið afl til góðs. En það sem skiptir enn meira máli er að fólk á að vera öruggt og hafa stjórn á eigin fjármálum. Í Bretlandi, og því miður víða um heim, hefur fólk almennt takmarkaðan skilning á peningum. Flestum hafa aldrei verið kennd fjármál og af þeim sökum getur fólk tekið slæmar ákvarðanir. Það er því sannarlega ekki vanþörf á að hefja fjármálafræðslu snemma á lífsleiðinni.“ Í tilefni af útgáfu íslenskrar þýðingar bókarinnar býður Seðlabanki Íslands til málstofu um fjármálalæsi og fjármálafræðslu fyrir börn og ungmenni í dag. Málstofan fer fram í húsakynnum bankans og hefst kl. 15:00. Hægt verður að fylgjast með málstofunni í vefstreymi á vb.is og heimasíðu Seðlabankans. Flutt verða erindi á málstofunni er varða fjármálalæsi og munu meðal annars Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, taka til máls ásamt Robert Gardner og Gunnari Baldvinssyni, höfundi bókarinnar Farsæl skref í fjármálum . Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .