Hildur Ómarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum. Hún hefur yfir tveggja áratuga reynslu úr ferðaþjónustu og starfaði um árabil hjá Icelandair Hótelum, síðar Iceland Berjaya Hotels. Þar gegndi hún fjölbreyttum stjórnunarstörfum, meðal annars sem aðstoðarframkvæmdastjóri, framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs, sölu- og markaðsstjóri og hótelstjóri. Hildur hefur víðtæka reynslu af þróun nýrra verkefna, uppbyggingu vörumerkja og opnun nýrra hótela. Undanfarin rúm tvö ár hefur hún starfað hjá Flóka Invest þar sem hún hefur meðal annars sinnt viðskiptaþróun, rekstri hótelíbúða og fasteignaumsýslu. Samhliða störfum sínum hefur hún setið í stjórnum fyrirtækja á sviði ferðaþjónustu og nýsköpunar. „Við erum mjög ánægð með að fá Hildi til liðs við Íslandshótel og að hún taki sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Ráðning hennar er mikilvægur liður í áframhaldandi uppbyggingu félagsins. Hildur býr yfir víðtækri reynslu af uppbyggingu í ferðaþjónustu, ekki síst á sviði hótelreksturs og veitinga, auk þess að hafa gegnt fjölbreyttum stjórnunarstörfum á sínum ferli. Við þekkjum vel til starfa hennar í gegnum árin og hlökkum til að njóta krafta hennar,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela. Í starfi sínu hjá Íslandshótelum mun Hildur bera ábyrgð á viðskiptaþróun félagsins með áherslu á ný vaxtartækifæri, stefnumótun, samstarfsverkefni og þróun vöruframboðs. Sem hluti af framkvæmdastjórn mun hún jafnframt taka þátt í mótun heildarstefnu Íslandshótela. „Ég er spennt að ganga til liðs við Íslandshótel á þessum tíma. Framundan eru fjölbreytt og spennandi uppbyggingar- og þróunarverkefni sem ég hlakka til að takast á við ásamt öflugu teymi félagsins. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum til áframhaldandi vaxtar og þróunar Íslandshótela,“ segir Hildur Ómarsdóttir, nýr framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum