Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Undanþágur ekki það sama og glufur

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 10.9.2026 | 12:02 Undanþágur ekki það sama og glufur Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og fleiri ráðherrar í ríkisstjórninni hafa ítrekað talað um að „loka glufum“ í skattkerfinu. Morgunblaðið/Eggert Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Ekki upplýst um söluheimild á flugstöðinni Gagnrýna 100 prósenta hækkun komugjalda Vill heimild til að selja Haga Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Skattarnir meiri en fólk áttar sig á » Fleiri tengdar fréttir Gunnar Ármannsson, lögmaður hjá VHE legal, gagnrýnir harðlega orðanotkun fjármála- og efnahagsráðuneytisins í áformum stjórnvalda um breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld. Áformin eru birt í samráðsgátt. Gunnar segir hugtakið „að loka glufum“ gildishlaðið og að með notkun þess sé hætta á að skattahækkanir eða breytingar á skattastefnu séu settar fram sem „leiðrétting á göllum“ í gildandi lögum. Í umsögn sinni um áformin bendir Gunnar á að ríkisstjórnin segi eitt markmiða sinna vera að „bæta skattskil, loka glufum og fækka undanþágum í skattkerfinu“. Í mati á áhrifum lagasetningarinnar sé jafnframt talað um „nauðsynlegar breytingar“ sem leiði til „bættra skattskila, lokunar glufa, fækkunar undanþága og aukinnar skilvirkni í framkvæmd“. Gunnar telur þessa framsetningu fela í sér fyrirframgefna efnislega niðurstöðu um réttmæti gildandi lagaákvæða án þess að hugtakið glufa sé skilgreint eða sú niðurstaða rökstudd. Bendir hann meðal annars á að samkvæmt lögum um Stjórnarráð Íslands skuli mál sem notað er í starfsemi þess vera vandað, einfalt og skýrt. „Hugtakið „glufa“ er ekki hlutlaust hugtak. Þegar talað er um glufu í lögum felst í því sú merking að í löggjöfinni sé galli, ófyrirséð eyða eða leið til að komast hjá þeirri niðurstöðu sem löggjafinn í raun ætlaðist til,“ segir Gunnar. Að loka glufu feli þannig samkvæmt almennum málskilningi í sér að lagfæra eitthvað sem hafi farið úrskeiðis. Hann tekur fram að slíkt geti vissulega átt við. Lagaákvæði geti haft ófyrirséðar afleiðingar eða verið nýtt með öðrum hætti en löggjafinn gerði ráð fyrir. Þá þurfi hins vegar að gera grein fyrir því hvaða glufa sé í lögunum, hvernig hún hafi orðið til og hvernig hún hafi verið nýtt. Annað eigi við þegar löggjafinn hafi meðvitað ákveðið að ákveðinn hópur, viðskipti eða aðstæður sæti annarri skattalegri meðferð en almennt gildir, til dæmis með undanþágu, frádráttarheimild eða skattalegri ívilnun. „Sú staðreynd að stjórnvöld eða nýr þingmeirihluti telji síðar rétt að breyta þeirri ákvörðun gerir fyrra fyrirkomulagið ekki að „glufu“,“ segir í umsögninni. Hærri skattar séu kallaðir réttum nöfnum Gunnar vísar í þessu samhengi til ummæla Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra við kynningu fjárlagafrumvarpsins. Ráðherra hafi lýst því að ríkisstjórnin fari „blandaða leið“ við að ná jafnvægi í ríkisfjármálum og að hluti aðhaldsins komi fram á tekjuhlið. Gunnar segir það undirstrika mikilvægi þess að skattabreytingar séu kynntar með gagnsæjum hætti. „Ef afnám undanþágu eða ívilnunar leiðir til þess að ákveðinn hópur greiðir hærri skatta á að ræða það berum orðum sem breytingu á skattbyrði og rökstyðja hvers vegna sú breyting sé talin réttlætanleg,“ segir í umsögn Gunnars en þar segir jafnframt að almennt tal um að loka glufu komi ekki í stað slíks rökstuðnings. Hann tekur sérstaklega dæmi af fyrirhugaðri lækkun endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við íbúðarhúsnæði. Fjármálaráðherra hafi sjálfur bent á að heimildinni hafi upphaflega verið ætlað að draga úr svartri atvinnustarfsemi en jafnframt lýst þeirri afstöðu að ekki væri æskilegt að nota virðisaukaskattskerfið til að ná pólitískum hliðarmarkmiðum. Að mati Gunnars sýnir þetta að um hafi verið að ræða meðvitaða stefnumörkun löggjafans sem núverandi stjórnvöld vilji endurmeta. „Að breyta slíkri stefnu er eitt; að lýsa þeirri reglu sem fyrir var sem „glufu“ er annað.“ Kallar eftir sundurliðun Gunnar bendir á að áformin taki til fjölmargra og ólíkra breytinga, meðal annars á framtalsskilum, frádrætti vaxtagjalda, bindandi álitum, tollflokkun, tollfrjálsri verslun, nikótínvörum og frádrætti vegna framlaga til félaga sem starfa til almannaheilla. Ekki sé hins vegar skýrt hvaða ákvæði séu talin fela í sér „glufur“, í hverju þær felist eða gegn hvaða upphaflega vilja löggjafans þær gangi. Hann leggur því til að hætt verði að nota „að loka glufum“ sem almenna lýsingu á breytingunum. Þess í stað verði hver breyting kölluð sínu rétta nafni, svo sem afnám undanþágu, þrenging frádráttarheimildar eða breyting á skilyrðum skattalegrar ívilnunar. Telji ráðuneytið raunverulega glufu vera fyrir hendi eigi það að útskýra nákvæmlega í hverju hún felist og hvernig framkvæmdin víki frá upphaflegum tilgangi löggjafans. „Það er fullkomlega lögmætt að breyta skattastefnu. En breyting á stefnu verður ekki að lagfæringu á „glufu“ við það eitt að henni er gefið það heiti,“ segir Gunnar. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Ekki upplýst um söluheimild á flugstöðinni Gagnrýna 100 prósenta hækkun komugjalda Vill heimild til að selja Haga Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Skattarnir meiri en fólk áttar sig á » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Snýr aftur í Breiðholtið Niðurrifi í Grindavík gæti lokið um mitt næsta ár Bærinn leitar leiða til að fjölga leikskólakennurum Undanþágur ekki það sama og glufur Everyone seemed united in the silence Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Gæti margfaldað orkuna Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Hjúkrunarheimili hafnað Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Heiðruðu Harald konung og settu met Gæti margfaldað orkuna Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Nýjast á mbl.is » Snýr aftur í Breiðholtið Niðurrifi í Grindavík gæti lokið um mitt næsta ár Bærinn leitar leiða til að fjölga leikskólakennurum Undanþágur ekki það sama og glufur Everyone seemed united in the silence Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við skuldum engri elítu neitt“ Birta ekki dóma yfir sjálfum sér „Íslenska menntakerfið er ekki að skila árangri“ „Þetta er nú meira ástandið“ Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Hjúkrunarheimili hafnað Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Heiðruðu Harald konung og settu met Gæti margfaldað orkuna Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur

Share this article