Innlent | mbl | 10.9.2026 | 20:34 Innihaldslaus frasi að segja reksturinn traustan Einar Jóhannes Guðnason, oddviti Miðflokksins í Kópavogi. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Oddviti Miðflokksins í Kópavogi segir það innihaldslausan frasa að halda því fram að rekstur sveitarfélagsins sé traustur eins og Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri sagði í tilkynningu fyrr í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá oddvitanum, Einar Jóhannesi Guðnasyni. Greint var frá því fyrr í dag að Rekstrarniðurstaða A-hluta Kópavogsbæjar væri neikvæð um 222 milljónir króna, saman 485 milljóna króna áætlaðan halla og er niðurstaðan því 263 milljónum krónum betri en áætlun gerði ráð fyrir. Frétt af mbl.is 222 milljóna halli í Kópavogi Stangast á við það sem haldið var fram Segir Einar Jóhannes uppgjörið stangast á við fullyrðingar meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í aðdraganda kosninga í vor. „Í sveitarstjórnarkosningunum hrósaði meirihlutinn sér ítrekað fyrir að taka ekki lán. Þessu héldu fulltrúar meirihlutans fram vitandi að Kópavogsbær hafði tekið ný langtímalán upp á rúma 2,5 milljarða króna fyrr á árinu.“ Spyr hann sig jafnframt hvað Ásdís eigi við með því að reksturinn sé traustur. „Nú er uppgjör með neikvæðri rekstrarniðurstöðu kynnt undir formerkjum „trausts reksturs“, innihaldslaus frasi sem mætti skoða aðeins nánar. Hvað gerir reksturinn traustan? Að bærinn hafi „óvænt“ tekjufært 550 milljónir króna vegna byggingarréttar sem var fyrirséður tekjuliður?“ Niðurstaðan fin miðað við aðstæður Viðurkennir Einar þó að óraunhæft væri að gera þá kröfu á meirihlutann að reka sveitarfélagið með afgangi í ljósi núverandi efnahagsástands. Niðurstaðan sé því í raun fín miðað við aðstæður. „Það má þó gera kröfu um hreinskilni. Í komandi fjárhagsáætlunargerð þarf að fara í aðhaldsvinnu, því ekki getum við til lengdar treyst á lóðatekjur og nýjar lántökur,“ segir í tilkynningunni. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Stórsigur United í fyrsta leik Í fimmta sæti á EM „Það sendir kolröng skilaboð“ Þórsarar komnir á blað Innihaldslaus frasi að segja reksturinn traustan Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki upplýst um söluheimild á flugstöðinni Heitasti mánuður sem mælst hefur um allan heim Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Ökumaður krossara handtekinn eftir eftirför Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Heiðruðu Harald konung og settu met Gæti margfaldað orkuna Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Nýjast á mbl.is » Stórsigur United í fyrsta leik Í fimmta sæti á EM „Það sendir kolröng skilaboð“ Þórsarar komnir á blað Innihaldslaus frasi að segja reksturinn traustan Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Birta ekki dóma yfir sjálfum sér Brotalöm í kennslu erlendra barna „Við skuldum engri elítu neitt“ Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Ökumaður krossara handtekinn eftir eftirför Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Heiðruðu Harald konung og settu met Gæti margfaldað orkuna Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu