Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Frakkar í úrslit eftir sigur gegn heimakonum

Read Full Article →

Frakkland vann öruggan 86-64 sigur á heimakonum í Þýskalandi og fer því í úrslit heimsmeistaramóts kvenna í körfubolta. Bandaríkin og Spánn mætast í hinum undanúrslitaleiknum á eftir klukkan 18:00. Frakkar voru tveimur stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 25-23, en forskotið var orðið átta stig í hálfleik, 45-38. Þær stungu svo af í þriðja leikhluta og leiddu 64-50. Að lokum vannst öruggur 22 stiga sigur, 86-64. Frakkar náðu mest 26 stiga forskoti og leiddu nær allan leikinn, að undanskildum 11 sekúndum sem heimakonur voru yfir. Gabby Williams leiddi sóknarleik Frakka og var með 31 stig, mest allra. Marie Guelich var stigahæst hjá Þýskalandi með 19 stig.

Share this article