Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Af hverju ná sum teymi alltaf meiri árangri?

Read Full Article →

Flest fyrirtæki leggja mikla áherslu á stefnu, markmið og árangursmælikvarða. Það er eðlilegt. En þegar teymi skila ekki þeim árangri sem búist er við er orsökin sjaldnast skortur á hæfni eða þekkingu. Oftar liggur vandinn í samskiptunum. Í mörgum teymum er fólk hæfileikaríkt og metnaðarfullt. Samt gerist eitthvað á leiðinni: fundir verða ómarkvissir, ágreiningur fer undir yfirborðið eða gagnrýni er tekin persónulega. Orka fer í innri togstreitu í stað þess að fara í verkefnið sjálft. Raunar benda rannsóknir til þess að það sem aðgreinir sterk teymi frá öðrum sé ekki fyrst og fremst greind, reynsla eða fagþekking heldur hæfni til að vinna með samskipti, traust og viðbrögð við álagi. Þetta er oft kallað tilfinningagreind í teymum. Hugtakið getur þó villt um fyrir fólki. Margir tengja það við eitthvað mjúkt eða óljóst sem eigi lítið erindi inn í rekstur fyrirtækja. En í raun snýst þetta fyrst og fremst um skilvirkni í samstarfi. Sterk teymi hafa ákveðna sameiginlega hæfni. Þau ná að ræða erfið mál áður en þau verða að vandamálum. Þau geta tekist á um hugmyndir án þess að traustið rofni. Þau geta tekið gagnrýni án þess að fara í vörn. Og þau geta haldið fókus á verkefninu þótt pressan aukist. Þetta er ekki tilviljun heldur hæfni sem hægt er að þjálfa. Í mörgum fyrirtækjum er lögð mikil áhersla á að þróa leiðtogahæfni einstaklinga, en mun minni áhersla á að þróa hæfni teymisins sjálfs til samstarfs. Það getur verið dýr mistök. Því þegar teymi virkar vel margfaldast styrkleikar einstaklinganna. Þegar það virkar illa gerist hið gagnstæða. Stjórnendur sjá þetta oft skýrt í daglegum rekstri: sum teymi ná stöðugt meiri árangri en önnur – jafnvel þótt hæfnin á pappír sé svipuð. Munurinn liggur sjaldan í stefnu eða skipuriti. Munurinn liggur í því hvernig fólk vinnur saman. Þess vegna er sífellt meiri áhersla á að byggja upp teymi sem kunna að nýta mismunandi sjónarmið, takast á við ágreining á uppbyggilegan hátt og halda fókus þegar á reynir. Slík teymi taka betri ákvarðanir, bregðast hraðar við breytingum og skapa vinnuumhverfi þar sem fólk leggur meira af mörkum. Spurningin sem stjórnendur ættu kannski oftar að spyrja er því ekki bara: „Erum við með rétt fólk?“ Heldur líka: „Höfum við byggt teymi sem kunna að vinna vel saman?“ Sífellt fleiri fyrirtæki eru farin að þróa þessa hæfni markvisst innan teyma sinna – enda hefur hún bein áhrif á bæði samstarf, ákvarðanatöku og árangur. Höfundur er reyndar stjórnendaþjálfi.

Share this article