Fyrsti leikur úrslitaeinvígis Íslandsmóts karla í íshokkí var í gærkvöld þegar SA og SR áttust við. Akureyringarnir byrjuðu betur og komust yfir 3-0. Liðið komst svo í fjögurra marka forskot snemma þriðja leikhluta, 5-1. Þá stefndi allt í öruggan sigur SA en allt kom fyrir ekki. Reykvíkingar settu allt í botn og tókst að jafna leikinn þegar um mínúta var eftir af venjulegum leiktíma, 5-5. Þá var gripið til framlengingar þar sem Axel Orongan skoraði sigurmark SR, 6-5. Liðið vann því sannkallaðan endurkomusigur og leiðir 1-0 í einvíginu. Vinna þarf þrjá leiki til að fagna Íslandsmeistaratitli. Liðin mætast næst á Akureyri þann 12. mars.