Úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitil kvenna í íshokkí er farið af stað og í gærkvöld var leikur tvö spilaður. Hann reyndist æsispennandi og fara þurfti alla leið í vítakeppni til að skera úr um sigurvegara. Skautafélag Akureyrar, SA, vann fyrsta leik einvígisins á laugardag og hefði því getað komið sér í kjörstöðu með sigri í gærkvöld. Leikurinn var hnífjafn en Arna Björg Friðjónsdóttir kom Skautafélagi Reykjavíkur, SR, yfir á 12. mínútu. Þegar komið var fram í þriðja og síðasta leikhluta jafnaði Herborg Geirsdóttir metin fyrir SA og 1-1 stóð að loknum venjulegum leiktíma. Hvorugu liðinu tókst að skora í framlengingunni og því var farið í vítakeppni. Í vítakeppninni reyndist Julianna Thomson, markvörður SR, hetjan því hún varði þrjú víti frá SA. Friðrika Magnúsdóttir skoraði úr öðru af tveimur vítum SR og það var nóg til að tryggja þeim dramatískan sigur. Staðan í einvíginu er því 1-1 en vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari. Næsti leikur er á dagskrá á morgun, fimmtudag, fyrir norðan. Afleit veðurspá er að vísu í kortunum á morgun og því gæti leiknum verið frestað.