SR og SA mættust í Skautahöllinni í Laugardal í kvöld í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil kvenna í íshokkí. SA vann fyrsta leik einvígisins á Akureyri en SR svaraði með tveimur sigrum í röð og var því 2-1 yfir í einvíginu fyrir leikinn í kvöld. Ekkert mark var skorað í leiknum í kvöld og ekki heldur í framlengingu svo grípa þurfti til vítakeppni. Það var Ragnhildur Kjartansdóttir sem tryggði SR titilinn þegar hún skoraði úr síðasta vítinu og SR vann vítakeppnina 3-1. Kvennalið SR var endurvakið keppnistímabilið 2020-2021 og var að leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn.