Skautafélag Reykjavíkur (SR) vann fyrsta úrslitaleikinn við Skautafélag Akureyrar (SA) með gullmarki á þriðjudagskvöld í Reykjavík eftir ótrúlegan viðsnúning og komst þar með í 1-0 í úrslitaeinvíginu. Vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari og annar úrslitaleikur liðanna var spilaður á Akureyri í kvöld. Þar skoruðu Axel Orongan og Styrmir Maack sitt markið hvor fyrir Reykjavíkurliðið í fyrsta leikhluta og sáu til þess að 2-0 stóð eftir fyrsta þriðjung. Ormur Jónsson minnkaði muninn fyrir SA um miðjan annan leikhluta en Heiðar Örn Kristveigarson jók forskot SR aftur í tvö mörk skömmu síðar og 3-1 stóð eftir annan þriðjung. Eftir sex mínútna leik í þriðja og síðasta leikhluta bætti svo Hákon Magnússon fjórða marki SR við. Norðanmenn tóku áhættu í lokin og tóku markmanninn sinn af ísnum og bættu við útileikmanni til að auka sóknarþungann. Það varð þó til þess að Hákon skoraði öðru sinni, nú í autt mark SA og gulltryggði þar með 5-1 sigur SR-inga sem leiða þar með úrslitaeinvígið 2-0. SR getur því með sigri í þriðja úrslitaleik liðanna sem spilaður verður í Skautahöllinni í Laugardal klukkan 17:45 á laugardag, tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn.