Amaroq Minerals var með 27 milljónir kanadadala í tekjur á árinu 2025, fyrsta árið sem félagið hefur verulegar tekjur af gullsölu frá Nalunaq-námunni á Suður-Grænlandi. Þrátt fyrir það tapaði félagið 18,6 milljónum dala á árinu, samanborið við 23,5 milljóna dala tap árið áður. Tekjurnar komu af sölu á 5,31 þúsund únsum af gulli. Þegar beinn kostnaður við söluna hafði verið dreginn frá stóðu eftir 11,1 milljón dala. Rekstrartapið nam hins vegar 18,2 milljónum dala, meðal annars vegna mikils kostnaðar við rannsóknir, þróun og stjórnun. Eldur Ólafsson, forstjóri Amaroq, segir árið 2025 hafa verið afar árangursríkt fyrir félagið. Hann bendir á að fyrsta áfanga Nalunaq-námunnar hafi verið lokið og að framleiðslumarkmið ársins, 6 til 7 þúsund únsur af gulli, hafi náðst. Heildarframleiðslan nam 6,35 þúsund únsum og var því í samræmi við áætlanir. „Við tilkynnum jafnframt í dag að við munum brátt ljúka við samkomulag um nýja 70 milljón bandaríkjadala lánalínu sem er hækkun um 35 milljónir á núverandi lánalínu okkar. Samhliða hækkuninni er gert ráð fyrir lægra vaxtaálagi sem mun draga úr fjármagnskostnaði og auka sveigjanleika í lausafjárstýringu. Þessi viðbót, ásamt sterku sjóðstreymi frá rekstri, mun styrkja efnahagsreikning okkar verulega,“ segir Eldur í uppgjörinu. Stjórnendur segja jafnframt að framleiðsla það sem af er árinu 2026 sé í takt við væntingar. Á fyrri helmingi ársins er stefnt að 7 til 10 þúsund únsum og fyrir allt árið er markmiðið 25 til 35 þúsund únsur. Félagið gerir ráð fyrir að framleiðslan aukist sérstaklega á seinni helmingi ársins þegar annar áfangi vinnslunnar verður kominn í fullan gang. Amaroq reiknar með að endurheimt gulls fari upp í 90 til 95% eftir að nýr vinnsluáfangi verður tekinn í notkun á öðrum ársfjórðungi. Framkvæmdir við þann áfanga eru sagðar ganga samkvæmt áætlun. Efnahagur félagsins stækkaði talsvert á árinu. Heildareignir námu 354,5 milljónum dala í árslok, samanborið við 256 milljónir dala ári áður. Eigið fé nam 280,1 milljón dala, upp úr 201,2 milljónum dala árið áður. Handbært fé dróst hins vegar saman og nam 21,5 milljónum dala í lok árs, samanborið við 45,2 milljónir dala ári fyrr. Á sama tíma jukust birgðir verulega og námu 25,6 milljónum dala í árslok. Þar af var gullbirgðastaðan metin á 15,8 milljónir dala. Lækkun á handbæru fé skýrist meðal annars af mikilli fjárfestingu á árinu. Félagið segir 97% verka í fyrsta áfanga Nalunaq hafa verið lokið og að allir lykilþættir fyrir annan áfanga séu komnir á sinn stað. Þá tók Amaroq sjálft yfir allan neðanjarðarnámurekstur frá og með 1. október í stað þess að styðjast við verktaka. Að sögn félagsins hefur það þegar skilað aukinni framleiðni. Amaroq safnaði 83 milljónum dala í hlutafjárútboði í júní á síðasta ári. Þá lauk félagið í desember kaupum á Black Angel-námunni og Kangerluarsuk-leyfunum og lagði þar með grunn að nýrri starfsemi á vesturhluta Grænlands. Amaroq vinnur jafnframt að fjármögnun þjónustufélagsins Suliaq, sem ætlað er að þjónusta vaxandi námustarfsemi á Grænlandi. Þar er stefnt að því að afla 20 til 35 milljóna Bandaríkjadala í nýtt hlutafé. EIFO, fjárfestingasjóður á vegum danska ríkisins og einn stærsti hluthafi félagsins, hefur lokið frumathugun og lýst yfir áhuga á mögulegri þátttöku. Kostnaður vegna rannsókna og matsverkefna nam 10,9 milljónum dala á árinu og almennur stjórnunarkostnaður 19 milljónum dala. Félagið bókfærði einnig 2,1 milljón dala tap af hlutdeild sinni í sameiginlegu verkefni. Á árinu 2026 hyggst Amaroq halda áfram uppbyggingu á fleiri verkefnum í Grænlandi. Þar má nefna frekari boranir á Nanoq-svæðinu, áframhaldandi vinnu við Nalunaq og þróun Black Angel-námunnar, þar sem stefnt er að fyrsta áfanga vinnslu árið 2028. Stjórnendur benda á að niðurstöður úr rannsóknum hafi verið sterkar. Á Nanoq hafi fundist umtalsverð gull- og koparsteindamyndun og á Black Angel hafi sýni bent til hás innihalds af sinki, blýi og silfri, auk þess sem þar hafi einnig greinst málmar á borð við germaníum og gallíum