Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Endur­heimtu­hlut­fallið eykst um helming í Nalunaq

Read Full Article →

Málmleitarfélagið Amaroq hefur félagið lokið framkvæmdum við annan áfanga vinnslustöðvar sinnar við Nalanaq gullnámunnar á Suður-Grænlandi. Félagið tilkynnti í morgun um að framkvæmdum og gangsetningu flotrásar (e. flotation circuit) í vinnslustöðinni væri lokið og sagði framkvæmdatíma hafa verið í samræmi við áður birtar áætlanir félagsins. Fyrsta gullþykknið (e. gold concentrate) hafi verið framleitt og pakkað, samhliða áframhaldandi framleiðslu á Dore-gullstöngum. „Með tilkomu flotrásar mun endurheimtuhlutfalli gulls úr sama magni efnis aukast verulega, úr 50–70% í um 90–95%.“ Félagið segir að gullberandi afgangsefni (e. gold-bearing tailings), með um 6 g/t gullinnihaldi, sem hingað til hefur verið flutt aftur í námuna frá því framleiðsla hófst, muni jafnt og stöðugt verða flutt aftur í vinnslustöðina til endurvinnslu til að hámarka endurheimtur úr því efni. „Ég er afar ánægður að tilkynna að framkvæmdum og gangsetningu flotrásar í vinnslustöð okkar í Nalunaq er nú lokið. Þetta er mikilvægur áfangi í uppbyggingu verkefnisins og gerir okkur kleift að auka endurheimtur gulls úr um 61% á fyrsta ársfjórðungi ársins í 90–95% það sem eftir lifir árs. Þessi áfangi styrkir forsendur áður birtrar framleiðsluspár félagsins fyrir árið,“ segir Eldur Ólafsson, forstjóri Amaroq. Félagið staðfestir jafnframt framleiðsluspá sína fyrir árið 2026 sem áætlar framleiðslu á bilinu 25–35 þúsund únsur. Auk þess staðfestir félagið áður tilkynnt framleiðslumarkmið um 7.000–10.000 únsur á fyrri árshelmingi 2026. Hlutabréfaverð Amaroq hefur hækkað um 2,9% frá opnun Kauphallarinnar og stendur í 142 krónum á hlut þegar fréttin er skrifuð.

Share this article