Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hagnast um milljarð á öðrum fjórðungi

Read Full Article →

Amaroq skilaði 11,1 milljóna kanadadala hagnaði á öðrum ársfjórðungi eða sem nemur um 984 milljónum íslenskra króna miðað við núverandi gengi. Tekjur félagsins námu 37,3 milljónum dala eða um 3,3 milljörðum króna. Félagið seldi 5.640 únsur af gulli á fjórðungnum og nam vergur hagnaður 25 milljónum dala, um 2,2 milljörðum króna. Sjá einnig Amaroq skilar hagnaði í fyrsta sinn Í uppgjöri félagsins fyrir annan ársfjórðung segir að lausafjárstaða Amaroq hafi styrkst verulega á fjórðungnum. Handbært fé nam 28,5 milljónum kanadadala í lok júní, samanborið við 8,8 milljónir í lok mars. Félagið tryggði sér jafnframt 70 milljóna Bandaríkjadala lánalínu í lok apríl sem kom í stað eldri lána og á að lækka fjármögnunarkostnað. Eldur Ólafsson, forstjóri Amaroq, segir að mikilvægur rekstraráfangi hafi náðst á fjórðungnum þegar ný flotrás var gangsett í vinnslustöðinni í Nalunaq. Framkvæmdum lauk í lok maí og fyrsta gullþykknið úr flotrásinni var framleitt í júní. Áhrifin hafa þegar komið fram eftir lok fjórðungsins. Gullendurheimt í júlí var komin í um 90%, samanborið við 50–70% bil þegar eingöngu var stuðst við eldri vinnsluaðferðina. Markmið félagsins er að endurheimtin verði um 90–95% þegar flotrásin hefur náð fullum afköstum. „Gullframleiðsla í Nalunaq á fyrri árshelmingi gekk vel og var yfir miðgildi afkomuspár, sem kemur okkur í sterka stöðu til að ná framleiðslumarkmiði fyrir árið í heild. Samhliða því lukum við framkvæmdum við seinni fasa vinnslustöðvarinnar í júní, sk. flotrás (e. flotation circuit), sem markar mikilvægan áfanga fyrir félagið og mun stórauka endurheimtur gulls. Jafnframt höldum við áfram að þróa rannsóknarverkefni okkar, en vettvangstímabil ársins 2026 hófst með borunum við Ilua, þar sem leitað er að sjaldgæfum jarðmálmum (REE). Boranir eru einnig hafnar á Minturn-svæðinu og fyrr í þessari viku hófust auðlindaboranir við Nanoq, sem er eitt af lykilverkefnum okkar á sviði gullleitar.“ segir Eldur Ólafsson , forstjóri Amaroq. Þegar horft er til fyrri árshelmings í heild nam gullframleiðslan tæplega 9.000 únsum, sem var yfir miðgildi fyrri afkomuspár félagsins. Tekjur fyrstu sex mánuði ársins námu 56,2 milljónum kanadadala og hagnaður 13,6 milljónum, samanborið við rúmlega 10 milljóna dala tap á sama tímabili í fyrra. Amaroq heldur óbreyttri framleiðsluspá fyrir árið í heild, 25-35 þúsund únsum. Það þýðir að framleiðslan þarf að aukast töluvert á seinni árshelmingi. Stjórnendur segja framleiðslu á þriðja ársfjórðungi til þessa hafa verið í takt við væntingar og verður áherslan áfram á að auka námuvinnslu og afköst vinnslustöðvarinnar.

Share this article