Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Komin tæpa sjö mánuði á leið á strandveiðum

Read Full Article →

„Ég náði tíu róðrum í maí. Það gekk ótrúlega vel,“ segir Berglind Eir Egilsdóttir á Patreksfirði, sem hóf feril sinn sem strandveiðimaður nú í vor. Berglind kláraði síðasta prófið í skipstjórnarnáminu í lok maí og var því ekki komin með réttindi þegar strandveiðarnar hófust í byrjun maí. Rætt er við hana í nýútkomnu sjómannadagsblaði Fiskifrétta. Róið með tengdamömmu sem er með réttindi „Núna er tengdamamma með mér og ég geng með stelpu þannig að þetta er þriggja kvenna áhöfn,“ segir Berglind Eir Egilsdóttir. Mynd/Aðsend „Tengdamamma er með réttindi og hún hefur róið með mér í maí og verið mér stuðningur,“ segir Berglind. Tengdamóðir hennar er Þorgerður Einarsdóttir. Berglind kveðst hafa náð dagskammtinum í helmingi róðranna í maí. „Ég hef þurft að vera hér innanfjarðar í einhverri þolinmæði og ekki komið með allan skammtinn alltaf en ég er bara mjög sátt.“ Byrjaði til sjós með manninum sínum Berglind Eir Egilsdóttir, strandveiðimaður á Patreksfirði. Mynd/Aðsend Berglind mun ganga í hjónaband með sambýlismanni sínum, Einar Helgasyni sjómanni, laugardaginn 6. júní, daginn fyrir sjómannadaginn, sem hún segir mjög viðeigandi. „Ég byrjaði fyrst til sjós með manninum mínum í lok síðastliðins sumars á grásleppu og skaki og ákvað svo að skella mér í þetta nám í vetur,“ segir Helga, sem einnig fór nokkra togararóðra með Einari sem er á Vestra BA 67. „Ég sá fyrir mér að þetta væri eitthvað sem ég myndi vilja leggja fyrir mig.“ Báturinn Himinglæva Berglind Eir Egilsdóttir og Einar Helgason. Mynd/Aðsend Þau Berglind og Einar verða hvort á sínum bát, hún á Mótunarbát frá 1980 sem ber nafnið Himinglæva og þau keyptu í vetur. „Maðurinn minn á fyrir bátinn Kolgu, sem er ein af dætrum Ránar. Önnur dóttir heitir Himinglæva og ég ákvað að sækja um það nafn svo að bátarnir okkar væru systraskip,“ útskýrir Berglind nafnið á bátnum, sem hún segir hafa verið breytt sérstaklega með tilliti til strandveiða. „Þetta er flott skip til að sigla á.“ Von á stúlku í ágúst En hjónaband og strandveiðar eru ekki einu tíðindin úr lífi Berglindar. „Það er von á stúlkubarni í ágúst og eins lengi og ég get stefni ég á að róa. Eins og er hef ég sett mér markmið út júní. Svo sjáum við til hvað ég get áfram eftir það.“ Fríróður til að snurfusa sig Hjónavígslan verður í kirkjunni á Patreksfirði. „Svo er lítil athöfn á eftir með nánustu vinum okkar og vandamönnum. Svo er það bara út á sjó mánudaginn. Mögulega tek ég fríróður á fimmtudaginn til að snurfusa mig eitthvað til fyrir brúðkaupið en ef það er rosa flott veður veit ég ekki hvort ég tími því,“ segir Berglind Eir Egilsdóttir

Share this article