Lokatölur í Dallas urðu 2-2. Bæði lið gátu gengið ágætlega sátt frá borði en Hollendingar eru þó eflaust ögn ósáttari með niðurstöðuna, þar sem Japan jafnaði undir lok leiks. Pressan var það mikil að eitthvað varð undan að láta. Fyrri hálfleikur var afar bragðdaufur en það kviknaði líf í leiknum í seinni hálfleik. Virgil átti frábært skallamark í upphafi hálfleiks. Nakamura jafnaði með skoti úr nær vonlausri stöðu í gegnum þvögu. Summerville kom svo Hollendingum aftur yfir með skoti í stöngina og inn. Japanir sóttu án afláts og fastur skalli fór af Kamada og í netið. Liðin eru nú jöfn að stigum með eitt stig og Svíþjóð og Túnis mætast klukkan 02:00 í nótt.