Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

SÍ leiðrétti apríltölur – hefði átt að hækka vexti meira?

Read Full Article →

Greiðslukortavelta Íslendinga var 0,1% meiri í maí en í sama mánuði í fyrra, að teknu tilliti til gengis og innlends verðlags, samkvæmt nýjum tölum Seðlabankans um kortaveltu. Í nýrri hagsjá Landsbankans segir að það sem vekur helst athygli er að tölur Seðlabankans fyrir aprílmánuð voru uppfærðar töluvert. „Þegar þær voru fyrst birtar bentu þær til þess að kortavelta hefði dregist saman um tæplega 6% á milli ára, en uppfærðar tölur sýna nú mun hóflegri samdrátt, eða einungis 0,8%.“ Tölur Seðlabankans fyrir aprílmánuð voru leiðréttar vegna villu sem kom fram hjá einum skilaaðila. Sjá einnig Korta­velta hrynur milli mánaða Hagfræðideild Landsbankans veltir fyrir sér hvort vaxtaákvörðun peningastefnunefndarinnar í maí, þar sem stýrivextir voru hækkaðir um 25 puntka, hefði orðið önnur ef nefndin hefði haft réttar tölur í höndunum, sem sýndu að kortavelta stóð í stað í mars og apríl, en dróst ekki lítillega saman. „Þó það sé ekki þannig að ákvörðunartaka peningastefnunefndar byggi á einni tölu eingöngu má engu að síður velta þessu fyrir sér þar sem tónninn á fundinum og ákvörðunin sjálf var nokkuð mild í ljósi verulega versnandi verbólguhorfa. Kannski hefði átt að hækka meira?“ Bent er á að nefndin ræddi tvo valkosti fyrir síðustu vaxtaákvörðun, annars vegar að hækka vexti um 0,25 eða 0,5 prósentustig. Aldrei hærra hlutfall kortaveltu erlendis Kortavelta Íslendinga innanlands dróst áfram saman, eða um tæp 5% í maí. Á móti jókst kortavelta Íslendinga erlendis umtalsvert, eða um 18% á milli ára. „Það er athyglisvert í ljósi þess að talning Ferðamálastofu bendir til þess að utanlandsferðum Íslendinga hafi fækkað um 11% á milli ára. Í þessu samhengi er vert að benda á að kortavelta Íslendinga erlendis kemur bæði frá kortum sem straujuð eru í ferðalögum erlendis og frá erlendri netverslun. Þessi gögn benda því til þess að netverslun sé orðin afar umfangsmikil,“ segir í hagsjánni. Vakin er athygli á því að fjórðungur af allri kortaveltu Íslendinga í maí fór fram erlendis. Hlutfallið hefur aldrei mælst svo hátt áður. Bent er á að tímasetning páska gæti hafa haft áhrif á breytingar á milli mánaða, en ef mars og apríl eru teknir saman var 0,04% samdráttur í kortaveltu á milli ára. „Sé tekið tillit til þess að hluti opinberra gjalda af eldsneyti er nú innheimtur með kílómetragjaldi í stað þess að leggjast á dæluverð má ætla að kortaneysla hafi aukist lítillega á milli ára þessa tvo mánuði. Tölurnar benda því til þess að það sé að hægja á vexti einkaneyslu, en ekki til snöggkólnunar.“

Share this article