Donald Trump Bandaríkjaforseti staðfesti í gær að hann hafi beðið FIFA um að endurskoða leikbann Folarins Baloguns, framherja bandaríska landsliðsins. FIFA féllst á það og framherjinn var með í leik Bandaríkjanna gegn Belgíu í nótt. Belgar unnu, 4-1. Óskar Hrafn Þorvaldsson, einn sérfræðinganna í Stofunni, segir afskipti Trumps grín og atvikið vandræðalegt. „Infantino er bara trúður. Hann er og verður trúður og var trúður fyrir þetta,“ sagði Óskar og vísar í Gianni Infantino, forseta FIFA. „Þetta er vandræðalegt fyrir Bandaríkjamenn. Þeir sitja uppi með trúð líka, annan trúð, appelsínugulan trúð. Þarna koma tveir trúðar saman og það er ekkert sérstaklega gáfulegt sem gerist þá,“ hélt Óskar áfram. Innslagið úr Stofunni um rauða spjaldið og afskiptin má sjá í klippunni hér að ofan.