Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kína kaupir hlutabréf fyrir níu milljarða dala

  • What: China's state-backed stock purchases to support domestic markets
  • Impact: Affects global financial markets
Read Full Article →

Fjárfestingarsjóðir á vegum kínverska ríkisins keyptu hlutabréf fyrir tæplega 60 milljarða júana, jafnvirði um 8,9 milljarða Bandaríkjadala, um helgina í því skyni að styðja við innlendan hlutabréfamarkað eftir snarpa lækkun á föstudag. Frá þessu greinir Financial Times . Áhrif kaupanna, sem tilkynnt voru síðla á sunnudag, voru skýr þegar markaðir opnuðu í dag. CSI 300-vísitalan hækkaði um 1,5% og Hang Seng-vísitalan í Hong Kong um 2,4%, þrátt fyrir að aðrar helstu hlutabréfavísitölur í Asíu hafi lækkað verulega. Nikkei 225 í Japan og Kospi-vísitalan í Suður-Kóreu féllu báðar um rúm 4%. Inngripið kemur í kjölfar mikillar sölu á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum í lok síðustu viku, sem hafði einkum áhrif á tæknifyrirtæki og félög tengd gervigreind. CSI 300-vísitalan lækkaði um 3,6% á föstudag, sem var mesta lækkun hennar innan dags frá því að markaðir brugðust við tilkynningu Donalds Trump Bandaríkjaforseta um nýja tolla á „frelsisdeginum“ 2. apríl 2025. Tveir fjárfestingarsjóðir í eigu ríkisins, China Reform Holdings og China Chengtong, stóðu að kaupunum. China Reform Holdings keypti hlutabréf fyrir um 50 milljarða júana og sagði markmiðið vera að stuðla að stöðugleika á fjármálamarkaði. China Chengtong bætti við kaupum fyrir nær tíu milljarða júana og kvaðst hyggjast halda áfram slíkum kaupum eftir þörfum. Fyrirtækin sögðu kaupin einkum hafa beinst að hlutabréfum ríkisfyrirtækja. Þá kom fram að hluti fjármögnunarinnar hefði komið úr sérstöku endurlánaúrræði sem kínverski seðlabankinn setti á laggirnar árið 2024 til að styðja við hlutabréfamarkaðinn. Kínverska verðbréfaeftirlitið boðaði jafnframt fulltrúa verðbréfafyrirtækja og fjárfestingarbanka til fundar á mánudag þar sem ræddar voru leiðir til að tryggja stöðugleika á fjármálamarkaði. Í yfirlýsingu eftirlitsins kom fram að fundurinn hefði meðal annars fjallað um áhrif erlendra áhættuþátta á kínverskan markað og þróun sjálfvirkra viðskipta og gervigreindarlausna á fjármálamörkuðum.

Share this article