Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Mun hærra verð fæst nú fyrir grásleppuna

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 25.2.2026 | 7:04 Mun hærra verð fæst nú fyrir grásleppuna Dæmi er um að kílóverðið á grásleppu hafi farið upp í 1.000 krónur í vetur. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Meðalverð á grásleppu það sem af er þessu ári er meira en tvöfalt hærra en fasta verðið sem var á grásleppu í fyrra. Dæmi er um að kílóverðið hafi farið upp í 1.000 krónur í vetur, en fast verð á grásleppu var 250 krónur á kílóið á síðasta ári. Þetta segir Þorlákur Sveinsson, grásleppuútgerðarmaður á Skagaströnd, í samtali við Morgunblaðið. Hann þakkar þetta gildandi fiskveiðistjórnunarkerfi í grásleppu. Þorlákur gerir út bátinn Von HU 170 frá Skagaströnd og segir hann að lægsta verðið sem hann hafi fengið sé 491 króna fyrir kílóið, en hæst hafi kílóverðið verið 809 krónur. Meðalverðið í hans tilviki sé tæpar 600 krónur. Hann er nú búinn með kvótann og hefur landað 4.730 kílóum alls, en hann byrjaði veiðarnar í lok janúar. Mörgum snúist hugur „Ég veit um marga sem voru á móti veiðistjórnunarkerfinu í grásleppu en eru fylgjandi kerfinu nú,“ segir Þorlákur og nefnir að rólegra sé yfir grásleppuveiðimönnum nú en áður. Ekki þurfi að keppast við, menn geti verið með færri net í sjó og rólegra sé yfir mannskapnum. Fyrirkomulagið sé einnig mun hagfelldara m.t.t. kostnaðar við veiðarfæri. Þorlákur segir að verði farið á nýjan leik yfir í gamla dagafyrirkomulagið, eins og í grásleppufrumvarpinu sem nú bíður 3. umræðu á Alþingi, missi menn markaðinn sem greiði jafn hátt verð fyrir grásleppuna og raun beri vitni. Hann hefur af því miklar áhyggjur að frumvarpið verði að lögum. „Þá sitja grásleppusjómenn ekki lengur einir að markaðnum, heldur snurvoðarbátar og trollarar og aðrir slíkir,“ segir Þorlákur og nefnir að í lok apríl eða í maí, þegar hefðbundin grásleppuvertíð hafi áður hafist, sé þessi markaður búinn. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mun hærra verð fæst nú fyrir grásleppuna Lágu eins hráviði um alla borg Minntist ekki orði á Grænland í lengstu ræðu sögunnar Er þetta kröftugasti morgunverður allra tíma? „Kókóshneturnar“ orðnar 18 ára Umræðan Að banka á brennandi dyr ESB Mótun manneskjumiðaðrar gervigreindar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 40 milljarða búhnykkur Fjögur ár í foraði stríðsins Kristrún: Ótrúlega sársaukafullt stríð „Yfirþyrmandi að vera hérna annað skiptið í röð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Vegagerðin varar við vetrarfærð Sjö gámar fara frá Íslandi í vikunni Fangavörður grunaður um brot í starfi Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Þrjár stúlkur réðust á eina Viðbragð óásættanlegt en betri tíð í vændum Vantrauststillagan krafs í bakkann Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Fylgi Miðflokksins lækkar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur Þrjótar komust yfir menntaskólaeinkunnir Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Nýjast á mbl.is » Mun hærra verð fæst nú fyrir grásleppuna Lágu eins hráviði um alla borg Minntist ekki orði á Grænland í lengstu ræðu sögunnar Er þetta kröftugasti morgunverður allra tíma? „Kókóshneturnar“ orðnar 18 ára Umræðan Að banka á brennandi dyr ESB Mótun manneskjumiðaðrar gervigreindar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Fjögur ár í foraði stríðsins „Á eiturlyfjum og voru gjörsamlega stjórnlausir“ Grapevine í kröggum Mest lesið Í gær Í vikunni Vegagerðin varar við vetrarfærð Sjö gámar fara frá Íslandi í vikunni Fangavörður grunaður um brot í starfi Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Þrjár stúlkur réðust á eina Viðbragð óásættanlegt en betri tíð í vændum Vantrauststillagan krafs í bakkann Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Fylgi Miðflokksins lækkar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur Þrjótar komust yfir menntaskólaeinkunnir Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu

Share this article