Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Loksins meiðslalaus og vonast því eftir að geta sýnt sitt besta

Read Full Article →

„Ég er í fínu formi en mér finnst ég samt ekki hafa sýnt það á mótunum sem ég hef keppt á í sumar. En vonandi næ ég því besta út úr mér í keppninni hér á EM,“ segir Guðni Valur Guðnason við RÚV, en hann keppir í B-riðli forkeppni kringlukastskeppninnar á EM klukkan 11:00 á morgun. Kringlukastarinn Guðni Valur Guðnason keppir á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Birmingham á morgun. Hann segist enn eiga eftir að ná því besta út úr sér í ár þrátt fyrir að vera meiðslalaus og í góðu formi og vonast til að sýna það á morgun. Guðni hefur kastað frekar stöðugt í kringum 61-63 metra í sumar, en það vantar kannski aðeins upp á að vera þar sem hann vill vera. „Já, ég hef ekki hitt á neitt mót í ár þar sem ég næ alveg því allra besta úr mér. Það eina jákvæða sem ég sé þó við tímabilið hingað til er að ég hef ekkert meiðst, sem er fáranlega skemmtilegt og góð tilbreyting frá undanförnum árum. Mig langar að klára árið heill, en ég er í mjög góðu formi og mig langar að negla á þetta hér á EM.“ Þarf líklega að ná sínu lengsta kasti í ár til að komast í úrslit Kasta þarf 66 metra eða lengra til að komast í úrslit en alls komast þó tólf efstu í forkeppninni í úrslitin sem verða á fimmtudagskvöld. Guðni Valur hefur einu sinni áður komist í úrslit á stórmóti en það var á Evrópumótinu í München í Þýskalandi fyrir fjórum árum. En hvað þarf Guðni að gera til að komast í úrslitin á EM í Birmingham? „Ég þarf bara að kasta venjulega. Ef að ég næ þokkalegu kasti eins og ég geri á æfingum þá fer þetta langt og það er það sem ég ætla að gera í keppninni,“ segir Guðni Valur, en hver eru markmiðin hans á Evrópumótinu? Markmiðið að líða vel „Markmiðin mín eru þau að ég eigi allavega eitt kast sem er þannig að mér líði að ég sé að kasta kringlunni, hún sé ekki að renna úr höndunum á mér og ef það gerist þá mun kringlan fara langt,“ segir Guðni Valur Guðnason. Bein útsending frá fyrri keppnishluta morgundagsins á Evrópumótinu í frjálsíþróttum hefst klukkan 9:30 á RÚV og keppnin í B-riðli kringlukastsins hjá Guðna hefst klukkan 11:00.

Share this article