Spjótkastarinn Sindri Hrafn Guðmundsson stígur á stokk á EM í dag. Þetta er þriðja Evrópumótið sem Sindri keppir á og hann stefnir beina leið í úrslitin. Þeir sem ná yfir 82 metra fara beina leið í úrslit. Annars eru það þeir tólf kastarar sem kasta lengst sem fara inn í úrslit. Sindri er í A-riðli sem hefst klukkan um 12:45. Þá keppir Guðmundur Leo Rafnsson í undanrásum 50 metra baksunds í morgunhluta keppninnar. Hún hefst klukkan 07:25 og verður í beinni á RÚV. Dagskráin 13. ágúst: 07:25 EM í sundi RÚV 09:30 EM í frjálsíþróttum RÚV 16:25 EM í sundi RÚV 2 17:30 EM í frjálsíþróttum RÚV 2