Spjótkastarinn Sindri Hrafn Guðmundsson kastaði í undanrásum á EM í Birmingham í dag. Besta kast Sindra Hrafns í ár er 81,90 metrar. Þá hefur hann verið að kasta vel undanfarið og fór stórhuga inn í keppnina. Vitað var að allir sem köstuðu yfir 82 metra færu beina leið í úrslit eða 12 efstu keppendurnir. Fyrsta kast dagsins var upp á 77,49 metra og ólíklegt að það myndi duga. Þá skrikaði honum fótur í öðru kastinu og steig yfir línu og kastið var því ógilt. Þriðja og síðasta kastið var 79,21 metri. Sindri endaði áttundi í riðlinum og bíður nú eftir því að seinni kasthópurinn klári. Von Sindra er ansi veik en miði er möguleiki. Fréttin verður uppfærð eftir að síðari kasthópurinn hefur klárað. Síðari hópurinn byrjar 13:55. Sindri Hrafn Guðmundsson keppti í undanrásum spjótkasts á EM í Birmingham í dag. Lengsta kast Sindra Hrafns var 79,21 og nú bíður hann eftir síðari kasthópnum.