Reykjavík Geothermal (RG) hefur ráðið Jóhönnu Hörpu Árnadóttur sem forstöðumann umhverfis- og hagaðilasamskipta, Egil Agnar Októsson sem viðskipta- og fjármálasérfræðing, og Dr. Tingting Zheng sem jarðvísindamann. Jóhanna Harpa hefur víðtæka reynslu af umhverfis- og sjálfbærnimálum, verkefnastjórnun og samskiptum við hagaðila. Hún hefur áður starfað hjá Icelandair, Landsvirkjun og Norðuráli og hefur jafnframt sinnt sjálfstæðri ráðgjöf og stundakennslu við Háskólann í Reykjavík. Jóhanna Harpa er verkfræðingur með meistaragráðu frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU). Í starfi sínu hjá Reykjavík Geothermal mun Jóhanna Harpa leiða umhverfis-, samfélags- og gæðamál félagsins og styðja við þróun jarðhitaverkefna með áherslu á sjálfbærni, upplýsingagjöf og samskipti við hagaðila. Sjá einnig Auðbjörg og Hermann til Reykjavík Geothermal Egill kemur til Reykjavík Geothermal frá McKinsey & Company í Danmörku, þar sem hann starfaði við ráðgjöf og kom að verkefnum í Bandaríkjunum, Norðurlöndunum og á Íslandi. Fyrir Mckinsey starfaði Egill hjá Expectus og Evolv á sviði viðskiptagreindar og sjálfvirknivæðingar. Egill er með meistaragráðu í iðnaðarverkfræði og aðgerðagreiningu frá University of California, Berkeley, og BS-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Í starfi sínu hjá Reykjavík Geothermal mun Egill styðja við viðskiptaþróun, fjárhagsgreiningar og mat á fjárfestingarkostum félagsins. Hann mun jafnframt koma að fjármögnun og þróun verkefna á Íslandi og erlendis. Tingting hefur sérþekkingu á vatnajarðfræði og forðafræði, með áherslu á greiningu jarðhitakerfa og mat á jarðhitaauðlindum. Sjá einnig Reykjavík Geothermal sótti 2,4 milljarða Áður en hún gekk til liðs við Reykjavík Geothermal starfaði Tingting sem forðafræðingur hjá Arctic Green Energy í Reykjavík. Þar kom hún að þróun jarðhitaverkefna og alþjóðlegum ráðgjafarverkefnum. Áður starfaði hún um árabil hjá opinberri jarðfræðistofnun í Kína, þar sem hún vann að rannsóknum á jarðhita og grunnvatni, auk umhverfisrannsókna. Tingting hefur jafnframt tekið virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi á sviði jarðhita. Hún hlaut styrk til þátttöku í Jarðhitaskóla GRÓ og hefur meðal annars komið að starfsemi Kínversk-íslenska jarðhitaskólans og tekið þátt í starfi alþjóðlegra samtaka á sviði jarðhita. „Við erum afar ánægð með að fá Jóhönnu Hörpu, Egil og Tingting til liðs við Reykjavík Geothermal. Þetta ár hefur verið eitt mest spennandi ár félagsins frá upphafi og við stöndum nú á spennandi tímamótum,“ segir Magnús Dagur Ásbjörnsson, forstjóri RG.