Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Getur einhver stöðvað Bandaríkin? „Þarft að eiga stjörnuleik“

Read Full Article →

Riðlakeppnin á heimsmeistaramóti kvenna í körfubolta er búin. Bandaríkjakonur hafa sýnt mátt sinn og hafa unnið alla þrjá leiki sína hingað til. Þær eru ríkjandi heimsmeistarar og virka afar sterkar. Fyrrum landsliðkonan og sérfræðingurinn Helena Sverrisdóttir telur þó að nokkur lið geti strítt Bandaríkjunum. Til þess þurfa þó andstæðingar Kanana að eiga stjörnuleik. Þá ræddi hún einnig hvaða áhrif Caitlin Clark hefur haft innan sem utan vallar. Hvaða lið geta strítt Bandaríkjunum? Bandaríkin fóru létt með Kínverja og Tékka, en Bandaríkin unnu einmitt Kína í úrslitaleiknum fyrir tveimur árum. Ítalía náði hins vegar að standa í þeim og vannst sá leikur einungis með þremur stigum, 55-52. „Það er náttúrulega stór spurning. Við sáum auðvitað Ítalíu gefa þeim þvílíkan leik á sunnudagskvöldið. Það spilaði inn í að Ítalía náði að hægja á leiknum og Bandaríkin voru að skjóta illa. En það eru flott lið þarna eins og Frakkland og Belgía, og jafnvel Ástralía sem geta vel strítt þeim.“ Leikurinn gegn Kína vannst 94-61. Helena telur þó að þetta hafi verið tilviljun og riðlakeppnin sýni að nær allir geti unnið alla. „Eigum við ekki bara að segja að þetta hafi verið tilviljun? Þær áttu flottan leik en Kína var ekki að hitta nógu vel. Við sjáum það bara á þessu móti að Ítalía stendur í Bandaríkjunum en skíttapar síðan næsta leik. Það er einhvern veginn bara þannig að þú þarft að hitta á góðan leik. Það skiptir miklu máli að geta skotið vel fyrir utan, af því að stelpurnar þarna inni í teig eru mjög stórar og sterkar fyrir. Það gæti allt gerst ef liðin mætast aftur, seinna í keppninni.“ Clark áhrifin - bíður spennt eftir að hún taki yfir Caitlin Clark er á sínu fyrsta stórmóti með bandaríska liðinu. Clark áhrifin eru mikil þar sem áhorfendur í Þýskalandi hafa hópast á leiki Bandaríkjanna. Leikirnir þrír hafa verið sveiflukenndir hjá henni og þjálfararnir treysta enn á reynsluna þegar allt er undir. „Hún hefur komið mjög vel inn í þetta. Hún er búin að vera alltaf í yngri landsliðunum hjá þeim og unnið margar medalíur á mótum. En það er gaman að sjá hana mæta núna í þetta lið. Hún er náttúrlega stór ástæða fyrir því að það er uppselt á alla leikina. Það er mikið verið að tala um hana og það hafa verið áhorfendamet.“ Leikirnir þrír hingað til Kína : Tvöföld tvenna. 14 stig og 11 stoðsendingar. Flestar stoðsendingar hjá bandarískum leikmanni á HM frá 1998 Ítalía : Skoraði bara eitt stig og það kom af vítalínunni. Var einnig með fjögur fráköst og stoðsendingu á 19 mínútum. Tékkland : Var með 9 stig og 7 stoðsendingar. „Hún er búin að vera ótrúlega flott. En maður sér eins og í leiknum á móti Ítalíu, hún var ekki inn á í lokin. Þjálfarinn er að treysta á Chelsea Grey sem er leikstjórnandinn sem hefur verið í liðinu lengur. Maður sér að þjálfarinn var að treysta á reynsluna í lokin. Maður bíður spenntur eftir að hún taki yfir þetta lið. Hún og Page Beckers og Angel Reese eru þessar ungu stelpur sem eru framtíðin í liðinu. Það eru nokkrar komnar á síðustu metrana í liðinu sem eru samt að spila mjög vel og þjálfararnir eru að treysta á þær.“ Breiddin er geðveik Bandaríkin eru án A'ja Wilson og Kelsey Plum sem eru báðar frá vegna meiðsla. Wilson var valin verðmætasti leikmaðurinn á HM 2022. Það er ekki að sjá á liðinu. Helena segir breiddina ógurlega og að Bandaríkin geti leyft sér að spila einfaldan sóknarleik sem treystir á einstaklingsgæði. „Þetta er líka svona nánast í karlaliðinu. Til þess að vinna bandaríska liðið þarftu að eiga bara stjörnuleik. Þú þarft að hitta ógeðslega vel fyrir utan. Þú þarft að geta hægt á leiknum.“ „Þær eru með það mikla íþróttamenn og þú sérð það í sóknarleiknum. Þetta er ekkert flókið. Það er bara eitt „screen“ og svo eru þær með það mikil einstaklingsgæði að það á bara að búa eitthvað til út frá einu screeni. Á meðan þurfa önnur lið að keyra alls konar taktík til að reyna að opna liðin. Breiddin er auðvitað geðveik og það er fullt af stelpum heima sem hefðu viljað vera þarna. Það er til dæmis Sabrina Ionescu. Hún hefði alveg getað verið þarna. Þær eru bara bestar í heimi. En mér líður samt eins og það sé búið að styttast aðeins bilið. Sérstaklega þegar það vantar Ajay Wilson sem hefur getað unnið leiki upp á sitt eindæmi. Hvaða lið geta strítt þeim? En þá kemur að því. Hvaða lið eru það eiginlega sem geta komið í veg fyrir að heimsmeistaratitilinn fari aftur til Washington? „Ég hef mikla trú á því að Frakkland geti strítt þeim og jafnvel Belgía.“ En af hverju Frakkar? „Frakkland lítur ótrúlega vel út. Þær eru einhvern veginn komnar með mjög heilsteypt lið. Það eru margar stelpur sem eru að spila í WNBA og mæta þessum leikmönnum í hverri viku. Það er kannski eina að þær þurfa að hitta á leik þær sem þær hitta vel fyrir utan.“ Helena er einnig hrifin af Belgíu. „Belgía er líka Evrópumeistari. Þær eru kannski ekki með eins mikla breidd og Bandaríkin. En þegar þeirra bestu eru inn á, og ef þær ná að halda sér frá villuvandræðum og eru ferskar, þá held ég að þær geti strítt þeim mjög mikið. Þær voru nálægt því að vinna þær fyrir tveimur árum á HM. Þá redduðu Bandaríkin sér með flautukörfu. Þannig að Belgía er komin mjög nálægt þeim og getur alveg unnið þær á góðum degi.“

Share this article