- What: Leadership changes at Fálkanum - Ísmar
- Impact: Management restructuring
Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri Kemi ehf., hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Fálkans – Ísmars ehf. og mun gegna því báðum störfum á sama tíma. Samkeppniseftirlitið heimilaði samruna félaganna tveggja í byrjun júlí. Hrafn Hauksson hefur sömuleiðis verið ráðinn fjármálastjóri Fálkans – Ísmars og mun sinna starfi rekstrarstjóra og staðgengils framkvæmdastjóra. Hann hefur langan feril að baki sem fjármálastjóri, meðal annars hjá Sól – Víking, Ölgerðinni og Emmessís, auk þess sem hann hefur starfað sem ráðgjafi í hugbúnaðarverkefnum. Sjá einnig Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Baldur Þórarinsson hefur einnig verið ráðinn til félagsins og mun sinna sölu á nýjum búnaði sem ekki hefur áður verið í boði hjá Fálkanum – Ísmar. Hann hefur langa reynslu af sölu og þjónustu vinnuvéla og vörubíla og hefur starfað hjá Kraftvélum, Gloabl tækjum, Vinnuvélum og Ásafli ehf.